155. löggjafarþing — 24. fundur,  15. nóv. 2024.

kílómetragjald á ökutæki.

301. mál
[13:06]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég tel að það hefði verið mikilvægt að þetta mál hefði náð fram að ganga með seinkun á gildistökunni, eins og ég veit að lagt var til, þannig að nýrri ríkisstjórn og nýju Alþingi gæfist ráðrúm til að rýna enn betur þá hugsanlegu vankanta sem komið hefur fram í umræðu og umsögn að væru á málinu. Það er skrýtið að vísa máli til ríkisstjórnar, minnihlutastjórnar — við erum að fara að kjósa eftir nokkra daga og hver á þá að taka ábyrgð á málinu? Erum við þá að leggja það í hendur ríkisstjórnarinnar, starfsstjórnarinnar sem nú situr, sem verður kannski starfandi talsvert fram eftir, að hún fari með þetta mál? Er það það sem þingheimur vill gera? Með því að vísa þessu máli til ríkisstjórnar þá er það það sem verið er að gera akkúrat hér, (Gripið fram í.) það er starfandi ríkisstjórn. Við skulum ekki gleyma því … (Gripið fram í.) — Fyrirgefðu. Hæstv. forseti. (Forseti hringir.)

(Forseti (BÁ): Þingmaðurinn hefur orðið.)

Það er ekki verið að vísa þessu til næstu ríkisstjórnar. Við erum að vísa þessu til ríkisstjórnarinnar sem er að störfum núna.