155. löggjafarþing — 24. fundur,  15. nóv. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[14:45]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Frú forseti. Þetta eru svolítið sérstakir tímar, það er óhætt að segja það. Fyrir mig, sem er að ljúka störfum á Alþingi, er það ekki síst það að það gerist með þeim hætti sem raun ber vitni, þetta ber dálítið brátt að. Hafandi starfað í fjárlaganefnd eiginlega frá því að ég byrjaði á þingi 2013, og hafði svo sem líka verið varamaður í henni áður en ég tók fast sæti hér á Alþingi, þá er það sannarlega svolítið öðruvísi að ljúka þessu starfi með þeim hætti sem hér ber að. En það er líka þannig, ég tek undir það, að það er sómi og bragur að því að klára fjárlögin nú fyrir kosningar, það er betra en öll önnur niðurstaða hefði getað leitt til. Svo er það auðvitað þannig að þegar ný ríkisstjórn tekur hér við, hver svo sem hún verður og hvernig svo sem hún verður samsett, þá byrjar hún á því að setja sér fjármálastefnu. Það er hennar fyrsta verk að gera það og þar af leiðandi getur hún auðvitað farið ofan í fjárlögin eins og þau koma héðan, og verða væntanlega afgreidd nú á næstu dögum. Það er ekkert útilokað með það og kannski bara eðlilegt í ljósi stöðunnar að búa þurfi til einhverja fjárauka þó að það eigi auðvitað alltaf að vera neyðarbrauð.

Ég ætla að leyfa mér að gagnrýna hér tekjuöflunina og skyldi engan undra. Það er auðvitað rétt, sem hv. þm. Jódís Skúladóttir kom hér inn á, að það hefði verið hægt að klára og leggja upp með veiðigjöldin. Ég vona svo sannarlega að það verði verkefni næstu ríkisstjórnar að taka það mál áfram og breyta því ástandi sem nú er, ekki síst er varðar gagnsæi almennt í sjávarútveginum. Það eru líka frumvarpsdrög í matvælaráðuneytinu þess efnis. Það eru líka, svo að ég komi því að, breytingar varðandi strandveiðikerfið o.s.frv.; það er margt inni sem hægt er að gera.

Fiskeldisgjaldið, bara svo að ég haldi því til haga, kom frá fjármálaráðuneytinu. Sú hækkun sem þar var lögð til kom ekki frá matvælaráðuneytinu. Ég er hins vegar sammála þeirri hækkun og var sammála fjármála- og efnahagsráðherra að hafa það inni. Ég skil ekki að það ætti að sliga fiskeldisfyrirtækin að það verði lagt á. Í aðra röndina er verið að tala um að þarna séu svo stórkostlegar útflutningstekjur og þetta sé atvinnuskapandi og guð má vita hvað, en svo næsta dag eru þetta sprotafyrirtæki. Menn verða að ákveða hvernig þeir ætla að hafa umræðuna um fiskeldi eða lagareldi á Íslandi. Ég vona svo sannarlega að næsta þing beri gæfu til þess að ná utan um greinina sem slíka.

Það er alveg rétt að við höfum reynt að hafa félagslegt réttlæti að leiðarljósi í gegnum þetta ríkisstjórnarsamstarf þegar kemur að fjárlögum. Þrepaskipta skattkerfinu var komið á. Við höfum dregið úr greiðsluþátttöku sjúklinga og haldið er áfram á þeirri braut, gjaldfrjáls koma barna á heilsugæslu o.s.frv., það má lengi telja. Ég vil líka halda því til haga — af því að það er talsvert mikið talað af hægri flokkunum um báknið, að það þurfi að skera niður og minnka umsvif ríkisins. Samt ætlum við að nota ríkisfjármuni til að borga fyrir einkaheilbrigðisþjónustu eða eitthvað slíkt. Það er ekki eins og ekki sé verið að nota ríkisfjármagn til þess. Hægri flokkar tala um að fjármagnið sé betur nýtt með þeim hætti en ég er ósammála því. En báknið og fjölgun ríkisstarfa — við fengum minnisblað um það inn í ríkisstjórn — er fyrst og fremst fjölgun í heilbrigðisgeiranum og fjölgun í löggæslunni. Þar hefur mesti fjöldinn orðið til. Við þekkjum alveg þessa umræðu. Það er enn vöntun á fólki þarna inn. Það er margt sem kemur til, m.a. stytting vinnuvikunnar og allt það. Við þekkjum þetta, en þarna hefur mesti fjöldinn orðið til. Um leið ætla ég líka að segja að það er alltaf hægt að gera betur, hvort sem er í ríkisrekstri eða einkarekstri. Við eigum alltaf að vera vakandi og ég er alls ekki að halda því fram að ekki megi gera betur mjög víða í hinum opinbera rekstri.

En mig langar aðeins að fara ofan í það sem lagt er upp með í þessu frumvarpi. Ég er sammála mjög mörgu hérna. Ég tek líka undir þetta með Vegagerðina, ég fagna því viðbótarframlagi sem var í fjáraukalögum en hef sannarlega áhyggjur af því, ekki síst í ljósi þess að við erum ekki að afgreiða samgönguáætlun eða neitt, að Vegagerðin sé áfram vanfjármögnuð og ekki síst þegar við tölum um snjómokstur.

Það er ánægjulegt að sjá að gert er ráð fyrir auknum fjármunum í rekstrargrunn heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni, milljarði króna, og m.a. 600 milljónum líka til að styrkja hjúkrunar- og endurhæfingarstofnanir. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við gerum það. Ég greiddi atkvæði með því að hækka sóknargjöldin hér fyrr í dag og tel að það skipti líka miklu máli. Ég hef aðeins áhyggjur af varasjóðnum. Þó að hann eigi auðvitað ekki að vera útsprunginn þá er auðvitað verið að ganga talsvert nærri honum og ekki síst í ljósi þess að það á eftir að semja á opinberum markaði. Þrátt fyrir að eflaust sé gert ráð fyrir því að reyna að halda sig innan þeirra marka sem nú þegar hefur verið samið um þá er þetta samt sem áður til þess fallið að veikja stöðuna þegar kemur að því að varasjóður geti staðið undir öllu því sem getur komið upp á á næsta ári.

Ég vil líka segja, hafandi starfað lengi í fjárlaganefnd og hafandi fengið tækifæri til að starfa inni í ráðuneyti, að þessi flati niðurskurður, sem gjarnan kemur frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu gagnvart stofnunum og gagnvart ráðuneytum, er afleitur. Ég er búin að koma því á framfæri þar. Ég sat þar með hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni þegar við vorum að undirbúa fjárlögin fyrir tveimur árum eða svo, þar sem þetta var m.a. rætt. Ég hef sagt að við eigum miklu frekar að reyna að taka einhverjar tilteknar stofnanir undir einhverjum ráðuneytum, fara vel ofan í reksturinn og vinna okkur svoleiðis áfram, hvar er hægt að laga til og hvar er ekki hægt að leggja á flatan niðurskurð, af því að það skiptir máli.

Ég er líka ánægð að sjá að peningar eru lagðir í að styrkja eftirlit og umgjörð vegna frádráttar gagnvart tekjuskattinum hjá nýsköpunarfyrirtækjum. Við höfum í gegnum síðustu ár fengið þær upplýsingar í fjárlaganefnd að þess sé raunverulega þörf. Síðan er áfram verið að styrkja almanna- og réttaröryggi, þ.e. löggæsluna. Ég er mjög ánægð með að sjá, og ég vona svo sannarlega — þetta eru auðvitað talsverðir peningar sem lagðir eru til í þetta sameiginlega stóra verkefni þriggja ráðuneyta varðandi aðgerðaáætlun vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum. Það er mikilvægt að til þess verði horft þegar fjármálaáætlun verður smíðuð og ég hvet ykkur sem verðið áfram á þingi til að hafa í huga, þegar fjármálaáætlun verður lögð fram, að þessu sé fylgt eftir með viðeigandi fjármunum. Það er alveg ljóst að við erum ekki að leysa þetta á næsta ári. Hér er líka aftur verið að bæta í fjármunum vegna björgunarskipanna sem Landsbjörg er að kaupa. Það er vel og mjög nauðsynlegt, ekki síst þegar við erum með þetta sjálfboðaliðastarf; í því felst að við gætum þá a.m.k. að því að hægt verði að endurnýja skipin.

Af því að hér var verið að ræða um aðkomu Alþingis að fjárlagafrumvarpi og að fjárlagafrumvarpið væri hálfkarað þegar það kæmi til þingsins vil ég segja: Nú er ég bæði búin að sitja í stjórn og stjórnarandstöðu í fjárlaganefnd í þeirri vinnu. Ég er afskaplega ánægð með að fjárlaganefnd hafi rými og tækifæri til að vinna með frumvarpið. Ég er ekki tilbúin til að fá inn svo fullmótað frumvarp að nefndin geri ekki neitt með það. Það er heldur ekki eðlilegt í ljósi þess að það eru minni hluti og meiri hluti á þingi og gjarnan er þetta nefndin þar sem báðir þessir hópar geta komið einhverju að. Ég er mjög ánægð með að hafa getað stutt í gegnum árin við alls konar minni söfn og aðila og annað slíkt í þessari vinnu. Ég vil hins vegar segja að hér inni eru þekktir gestir sem eiga ekki að vera hér, heldur eiga ráðuneytin að taka það. Hér er 11 milljóna framlag til sýslumannsins á Norðurlandi eystra vegna Þórshafnar. Það er náttúrlega óboðlegt að dómsmálaráðuneytið skuli ekki geta séð af 11 milljónum og sett það inn í rammann sinn. Þetta er óboðlegt, þetta er svo lítil fjárhæð að þeir týna henni bara ef þeir hugsa um hana. Þetta er eitthvað sem mér finnst að verði að laga. Og það eru nokkur svona mál hér inni.

Síðan er það þetta ríkisstyrkta flug, ég held að það sé eitthvað sem við verðum líka að huga að. Ég vona að loftbrúin, við vorum að auka í hana í fjáraukalögunum — að við gætum að því að það sé þá sambærilegt fyrir komandi ár. Það er ekki tekið fram hér að gert sé ráð fyrir því. Mér finnst mikilvægt að við hugum að því, ef hún er að nýtast svona, að gera þá a.m.k. ráð fyrir einhverri sambærilegri nýtingu á næsta ári. Komandi úr matvælaráðuneytinu verð ég að játa að það gleður mig að fjármagna eigi að fullu kostnað vegna landsáætlunar um útrýmingu sauðfjárriðu. Ég ætla aftur að lýsa yfir vonbrigðum mínum með að sú tala hafi ekki verið inni í fjáraukalögunum og ég hef ekki fengið svar við því hvers vegna. Margt annað er þar inni sem ekki er endilega neinn djúpur rökstuðningur fyrir. Hér er líka verið að færa talsverða fjármuni og gera varanlega til Náttúruverndarstofnunar vegna markaðsleigu gestastofa. Þetta er líka eitt af verkefnunum sem við höfum verið með til umfjöllunar í fjárlaganefnd, þ.e. markaðsleigu hinna ýmsu stofnana sem eru á vegum ríkisins og aðilar hafa kvartað yfir. Hér eru rökin þau að þetta sé að flytjast til Framkvæmdasýslunnar. Það er ágætt ef Framkvæmdasýslan getur séð til þess að það komi í þetta peningar. Hér er líka annað kunnuglegt verkefni sem mér finnst sannarlega að umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið eigi að taka til sín, sem fjárlaganefnd hefur sinnt í fjöldamörg ár, og það eru viðbótarframlög til reksturs náttúrustofanna. Þetta eru 48 milljónir til allra stofanna, þ.e. 6 milljónir á hverja stofu. Þetta er reyndar óbreytt framlag og hefur verið í nokkur ár. Eins og annað þyrfti kannski að hækka þetta eitthvað aðeins. En þetta eru samt smáaurar í stóra samhenginu inni í ráðuneytinu, sem ráðuneytið og ráðherra á hverjum tíma ætti að taka til sín og vinna betur með.

Fólk verður líka að velta því fyrir sér hvort það er þannig að á hverju ári séu sömu aðilar, eins og við höfum lent í í fjárlaganefnd, að óska eftir stuðningi. Ég sé að hér eru einmitt undir Tækniminjasafnið, Flugsafnið, varðskipið Óðinn og fleiri. Það er auðvitað alltaf spurning hvort hægt er að gera einhvers konar samninga við þessar stofnanir og þessi söfn og annað slíkt. Einhver þeirra eru að fá aura en þurfa meira til að halda sér á lífi. Hér er líka, undir Menningarstofnunum, gert ráð fyrir flutningi, þ.e. 17 milljónum tímabundið; það er bara sagt vegna aukinna verkefna og ekkert tekið fram hver þau verkefni eru. Ég held að það sé viturlegt að hafa það í huga að vita hvernig því er ráðstafað þegar nefndin fer að vinna aftur með þetta á næsta ári.

Eins og ég sagði áðan er margt hér sem mér finnst skipta máli að nefndin hafi færi á að gera. Ég lýsi ánægju minni með að SSA fær hér styrk af því að það er apparat sem er sannarlega talsvert öðruvísi rekið en mörg önnur og hefur verið undir framlagi miðað við aðrar menningarmiðstöðvar. Ég held að það sé af hinu góða. Ég sé líka kunningjana okkar, sem við höfum verið að halda utan um í gegnum tíðina, ekki síst fyrir austan og fyrir norðan. Ég ætla að lýsa ánægju minni með leikskóla- og grunnskólastigið, þ.e. fjárheimildirnar sem á að nota til að auka stuðning við börn af erlendum uppruna þar sem leggja á áherslu á fyrstu þrjú árin eftir að þau koma, óháð aldri og skólastigi, með samræmda móttöku og þjónustu vegna tungumáls og menningar. Ég held að það sé afskaplega dýrmætt og mikilvægt fyrir okkur, ekki síst fyrir land og þjóð, að leggja mikið á okkur til að koma vel til móts við þessa einstaklinga þegar þau koma til landsins.

Varðandi sjúkrahússþjónustuna þá er BUGL hluti af þessu og fleiri. Mikið hefur verið rætt um geðræn vandamál ungs fólks og margt er þar undir. Þar er verið að leggja til viðbótarfjárveitingu við þann stuðning sem áður hafði verið lagður til. Þetta er eitthvað sem við verðum að halda afskaplega vel utan um. Ég tek undir að það er mikilvægt að þetta tímabundna fjármagn, sem er alltaf þegar fjárlaganefnd leggur eitthvað til, verði gert varanlegt þannig að við getum viðhaldið þessum árangri. Það er líka það sem er mikilvægt að gera, ekki síst vegna þess ástands sem við búum við í samfélaginu.

Mig langar að velta þessu upp hér: Gerð er tillaga um 300 millj. kr. í tímabundnar heimildir undir liðnum Lækniskostnaður hjá sjúkratryggingum til að fjölga lýðheilsutengdum aðgerðum á árinu 2025. Það er ekkert sagt hvort þetta er ætlað í einkavæðingu í því sem hér er undir, til þess að útvista verkefnum, eða hvort þetta er eitthvað sem á að finna stað undir þeim heilbrigðisstofnunum sem nú þegar eru að taka að sér ýmiss konar verkefni, eins og t.d. Heilbrigðisstofnun Vesturlands, eins og við þekkjum með liðskiptaaðgerðirnar. Það er eitt af því sem mér fyndist að þyrfti að svara. Er þessi millifærsla ætluð til útvistunar til einkaaðila í heilbrigðisþjónustu? Og ég segi það aftur og um leið að ég er ekki á móti einkarekinni heilbrigðisþjónustu, hún er og hefur verið og þarf að vera til staðar, en ég er á móti því hve mörgu hefur verið útvistað. Ég tel að nú sé svo komið að við eigum á hættu að missa besta fólkið okkar út af Landspítalanum vegna þess að við erum að útvista svo miklu. Það er raunverulegt vandamál. Svo á að setja á fót móttöku fyrir þolendur ofbeldis. Þetta er hluti af þeirri aðgerðaáætlun sem ég nefndi hér áðan, sem mér finnst líka að sé mikilvægt að verði. Ég bið verðandi þingmenn að gæta að því að þessu verði fylgt eftir í fjármálaáætlun, að þetta verði það verkefni sem því er ætlað að vera. Það er auðvitað þverfaglegt ofbeldisteymi starfandi, en þarna er í raun verið að reyna að þjónusta börnin sérstaklega og ég held að það sé svo sannarlega mikilvægt.

Áður en ég hætti, virðulegi forseti, þá vil ég nefna að heilbrigðismálin eru auðvitað stór eins og við heyrum líka í kosningabaráttunni þessa dagana. Það er gott að sjá hér fjármuni sem eiga að fara til verkefnisins Gott að eldast, vegna dvalarrýma, heimaþjónustu; það er allt saman undir, og það er bæði á Austurlandi og líka á Eir, Hömrum. Þetta er mikilvægt verkefni og þarf að fylgja vel eftir. Ég geri athugasemd og spyr formann, af því að ég sé að hann ætlar í ræðu, út í það að efst á bls. 21 í nefndarálitinu er gerð tillaga um 500 millj. kr. framlag til að styrkja heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa. Nánari útfærsla liggur ekki fyrir en heilbrigðisráðuneytið mun útdeila fjárveitingum til verkefna þegar útfærslan liggur fyrir. Ég spyr í ljósi þess sem ég sagði hér áðan: Er þetta útvistun til einkageirans? Eða hvað er þetta?

Að lokum, forseti: Ég gleðst yfir því að sjá mörg framlög hér. Ég ætla að tiltaka Ljósið í restina. Það eru ekki miklir peningar sem þar eru undir í ljósi þess hversu mikið það félag veitir okkur og hvernig það kemur til móts við þá sem þurfa á þjónustu að halda og sparar ríkinu líka heilmikla peninga. Það er margt undir í fjölskyldumálunum sem er ánægjulegt að sjá hér undir. Ég ætla bara að lýsa ánægju minni með að fjárlaganefnd hafi klárað sig af þessari vinnu. Ég held að það sé mjög mikilvægt að hafa gert það og gott fyrir þingið og ásýnd þess, líka fyrir alþingismenn sem sitja í nefndinni og hafa þurft að glíma við þetta verkefni á svona skömmum tíma. Það er ekki einfalt. Ég vil líka þakka fyrir mig í nefndarstörfum Alþingis og ekki síst í fjárlaganefnd, þeim sem þar sitja og hafa setið og ég hef starfað með.