fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Við erum búin að takast nokkrum sinnum á í þessari pontu, en erum oft sammála. Ég er sammála því að það er mjög margt þarna inni á hverju ári sem við glímum við og okkur sem setið höfum í fjárlaganefnd finnst ekki á okkur hlustað. Ég horfi fyrst og fremst til þeirra verkefna sem mér finnst sannarlega heyra undir ráðuneytin beint. Til dæmis á dómsmálaráðherra hvers tíma að segja: Við ætlum ekki að hafa starf sýslumanns á Þórshöfn, punktur. Þá bara segja þau það eða þau hafa fjárveitingarnar þannig að það sé hægt að halda því úti en láta ekki nefndina alltaf einhvern veginn redda þessum 11 milljónum fyrir horn. Alveg eins er með náttúrustofurnar. Við erum búin að veita þeim í gegnum árin einhverja viðbót af því að þetta dugar ekki til og það er vitað. Þetta finnst mér líka að eigi klárlega heima þarna. Það eru alls konar styrkir sem verið er að veita til safna og slíkt, það er eitthvað sem mér finnst vera verkefni nefndarinnar á hverjum tíma. Mér finnst það. Ég veit að við erum ekki sammála um það, ég og hv. þingmaður, og það er bara eitthvað sem okkur má greina á um. Mér finnst að fjárlaganefnd eigi að hafa svigrúm til að gera alls konar. Mér finnst það. Ég vil ekki taka við einhverju frá framkvæmdarvaldinu og bara hreinlega afgreiða það.
Varðandi afkomuna, hvort nefndin leggur til milljarð til eða frá eða eitthvað slíkt í viðbótarútgjöld, þá megum við heldur ekki gleyma því, eins og hv. þingmaður þekkir, að tekjurnar eru uppreiknaðar og annað slíkt þannig að það þarf ekki endilega að hafa endanleg áhrif. En sannarlega, ef nefndin gerði ekkert og niðurstaðan væri bara eins og hún kemur frá ráðuneytunum þá já, þá er það þannig. En þá erum við að taka Alþingi úr sambandi að mínu mati. Mér finnst það. Ég vil ekki bara koma í þingsal og segja já eða nei við því sem framkvæmdarvaldið leggur til. Alþingi og alþingismenn eiga að fá að hafa áhrif á frumvarpið á hverjum tíma. Það er mín skoðun.