155. löggjafarþing — 24. fundur,  15. nóv. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[15:10]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Vandinn er ekki að ráðherrar eða ráðuneytin séu ekki að hlusta. Ég held að vandinn sé frekar að þau viti að Alþingi og nefndin grípi inn í og reddi þessum aukapeningum. Þá geta þau forgangsraðað þeim fjármunum í eitthvað annað og fengið viðbótarfjárheimild sem er í rauninni utan fjármálaáætlunar. Það er vandinn í hnotskurn. Það er vandinn sem á bara ekki að viðgangast. Það er ekki ásættanlegt að ráðherrar geti í rauninni skilað fjárlagafrumvarpi eða fjármálaáætlun sem er vísvitandi röng með tilliti til lögbundinna verkefna. Það eru lögbundin verkefni, náttúrustofur, sýslumaður og ýmislegt svoleiðis. Það verður bara að skila fjárlagafrumvarpi með réttri upphæð, vissulega að mati ráðuneytis. Það er okkar hlutverk hérna á þingi að spyrja: Er þetta rétt upphæð? Við þurfum að skilja af hverju þetta er rétt eða röng upphæð. Ef upphæðin er röng þá segjum við tvímælalaust: Fyrirgefið, það verður að laga þetta, og við lögum þetta. Þannig erum við með frelsi til að gera hvað sem er í fjárlögum. En ég er ekki á því að við séum með frelsi til þess að draga upp einhver félagasamtök fram og til baka í 2. umræðu og dreifa peningum eins og ég veit ekki hvað. Ég er ekki sammála því að það sé rétt leið til að fara vel með opinbera fjármuni, alls ekki, heldur tökum við þær ábendingar og vinnum inn í faglegt ferli. Er þörf á þessu? Við spyrjum þeirrar spurningar og biðjum um svör og fjármögnum það ef svarið er já. Við fjármögnum það ekki ef svarið er nei, auðvitað ekki.