155. löggjafarþing — 24. fundur,  15. nóv. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[15:28]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S):

Frú forseti. Ég ætla fyrst og fremst að óska eftir að koma hér aftur í pontu Alþingis til að leiðrétta eina tölu sem misfórst hjá mér áðan, hún kemur samt fram í töflu í álitinu. Þar sem við erum að vísa óskum til efnahags- og viðskiptanefndar um að hækka kolefnisgjaldið þá erum við að tala um 4 milljarða, ekki 3,8 milljarða. Ég vildi koma og leiðrétta þessa tölu svo að því sé algjörlega haldið til haga.

Ég vildi bara, fyrst fyrirspurn frá hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur var vísað til mín áðan, óska henni alls hins besta. Við sátum saman í fjárlaganefnd um töluvert langt skeið og þekkjumst náttúrlega vel í störfum okkar í okkar kjördæmi. Varðandi 500 milljónir til heilbrigðiskerfisins þá er verið að ræða um sjúkraflutninga og heilsugæslu en ekki einkarekstur svo að því sé svarað hreint og beint.

Ég gleymdi náttúrlega að enda þetta með því að meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem skýrðar hafa verið og gerð er tillaga um í sérstökum þingskjölum.

Undir álit meiri hluta fjárlaganefndar skrifar sá sem hér stendur, Njáll Trausti Friðbertsson, framsögumaður og formaður, Stefán Vagn Stefánsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Jódís Skúladóttir, með fyrirvara, Sigþrúður Ármann og Vilhjálmur Árnason. Þá held ég að ég sé búinn að koma þessu lítilræði frá, þessu uppsópi hérna rétt í lokin.