155. löggjafarþing — 24. fundur,  15. nóv. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[15:37]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S) (andsvar):

Forseti. Ég er ekki með frekari upplýsingar um þessar 300 milljónir, við munum afla þeirra upplýsinga. Um það sem snýr að mismunandi sjónarmiðum um að nýta opinbert fé vel vil ég segja: Það getur vel verið að fjármagnið nýtist vel þegar menn eru með eigin rekstur og hugsa um hann sjálfir; þá skapast oft forsendur fyrir að fólk geti gert enn betur en þegar allt er í höndum hins opinbera. En það sem er kannski það stærsta í þessu er að skapa þær forsendur í íslensku heilbrigðiskerfi og búa til það umhverfi að við drögum unga fólkið okkar heim — fólk er kannski að mennta sig vítt og breitt um heiminn og sumir sem hafa kannski búið lengi erlendis fara að huga að því að koma heim — og það geti starfað í einkarekstri, að það þurfi ekki allir að vera hjá hinu opinbera. Þetta snýst nefnilega um mjög stóra mynd. Ég held að það sé ekki síður sú mynd sem við Íslendingar þurfum að huga að í sambandi við heilbrigðiskerfið okkar í dag, að gera það spennandi fyrir starfsfólkið, að það sé ekki allt sett inn í sama sílóið, að allir þurfi að vera hjá hinu opinbera, heldur að það geti skapast forsendur fyrir vel menntað fólk erlendis með mikla reynslu, að það geti hugað að því að koma heim og starfa í íslenskri heilbrigðisþjónustu. Það er fyrst og fremst markmiðið að búa til þá umgjörð að við séum vel samkeppnishæf með þeim hætti að við drögum líka fólk erlendis frá, hvort sem það eru Íslendingar eða fólk af erlendu bergi brotið, og að við séum alltaf með heilbrigðiskerfi sem er samkeppnishæft um fólk. Það er líka punktur sem er mikilvægur inn í þessa umræðu.