fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða frumvarp til fjárlaga og sem betur fer síðustu fjárlög ríkisstjórnar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna, ríkisstjórnar sem hefur verið við völd í sjö ár og, því miður, staðreyndirnar tala sínu máli. Þeir sem ættu síst að þurfa að herða sultarólina, aldraðir og öryrkjar, þeir sem eru að reyna að tóra í almannatryggingakerfinu, fá einhvern veginn alltaf á baukinn í fjárlögum. Það hlýtur að vera eitthvað skrýtin aðferðafræði þegar við segjum: Nú ætlum við að hækka um 4,3% hjá þessum hópi almannatryggingaþega um næstu áramót. Það er búin að vera mikil verðbólga á okkar mælikvarða á síðasta ári en á sama tíma var samið á launamarkaði um 23.000 kr. hækkun lágmarkslauna, 23.700 kr. ef ég man rétt. Hvað þýðir það á mannamáli tölfræðilega þegar við ætlum að hækka aldraða og öryrkja í almannatryggingakerfinu um 4,3%? Jú, það er mjög einfalt. Þeir lægstu fara úr 335.000 kr. í 349.000 kr., 14.000 kr. hækkun. Setjum það í samhengi við 23.000 kr. Það vantar þarna upp á nærri 10.000 kr. fyrir þennan hóp. Svona verður kjaragliðnun til. Svona hefur kjaragliðnunin orðið til undanfarinn áratug. Ef við myndum bara að setja þessa tölu í samhengi við síðustu sjö árin erum við að tala um 70.000 kr. sem vantar þarna upp á. En það er mun meira. Það er þessi lenska hérna að reikna allar verðbætur og verðhækkanir þannig að það sé alltaf einhvern veginn hægt að hafa þær mun lægri fyrir þennan hóp. Ég hef aldrei getað skilið þá aðferðafræði sem er notuð í þetta. Ég hef reynt að setja mig inn í það en því miður, það er vonlaust að átta sig á því hvernig þeir fá alltaf út þessar tölur.
Ef við tökum sérstaklega síðasta tímabil, þegar við vorum fyrir ári síðan að tala um þetta, þá var eiginlega það merkilegasta við þetta allt saman að það var ein vísitala, verðtrygging og annað fyrir RÚV og einkarekna fjölmiðla, um 10%, og einhvern veginn gátu þeir fundið út að á sama tíma væri vísitala fyrir þennan hóp 7%. Þarna var himinn og haf á milli og þetta virðist enn þá vera í gangi, sem er furðulegt.
Ef við tökum þá sem eru með heimilisuppbót þá eru þeir að hækka úr 421.000 í 430.000 kr. Við skulum átta okkur á því að við erum að tala um upphæðir fyrir skatt. Þeir fá 18.000 kr. hækkun. Þeir ná ekki einu sinni upp í þessa 23.000 kr. hækkun sem allir aðrir fá á almennum launamarkaði. Það hlýtur að vera einhver skýring á því hvers vegna í ósköpunum það er ekki hreinlega farið eftir því, ef það er á annað borð verið að hækka lágmarkslaun, og hækkunin sé hreinlega látin fylgja beint inn í þennan pakka, til almannatryggingaþega, þeir fái nákvæmlega sömu upphæð. Þá erum við a.m.k. að stöðva alla kjaragliðnun og sýna það réttlæti í framkvæmd að viðkomandi hópur eigi nákvæmlega rétt á því að fá það sama. En það bíður sennilega nýrrar ríkisstjórnar að taka á því. Það er vonandi eitthvað sem næsta ríkisstjórn mun taka á og pottþétt ef Flokkur fólksins verður þar við völd.
Staðan í okkar samfélagi er sú að við erum t.d. með þannig heilbrigðiskerfi núna að það er eiginlega skelfilegt. Við erum með 600 börn á bið og þar af eru rúmlega 500 börn sem hafa beðið í meira en þrjá mánuði eftir þjónustu sem á bara að vera sjálfsögð. Það á auðvitað ekkert barn að vera á bið. Ég get ekki skilið hvernig við getum sett barn á bið eftir heilbrigðisþjónustu. En það er kannski ekkert undarlegt við það í sjálfu sér miðað við annað. Ég heyrði hér áðan að verið var að tala um liðskiptaaðgerðir og annað. Það var settur peningur í liðskiptaaðgerðir, það átti að gera átak. En ég skil ekki þann tilgang, ef tilgangurinn var að gera átak, því hvernig í ósköpunum getum við verið með þannig kerfi að fullvinnandi fólk sem þarf að fara í liðskiptaaðgerð þurfi að taka marga mánuði, jafnvel ár, frá vinnu til að fara í gegnum þetta kerfi? Ég veit um dæmi þar sem fólk er bara dregið á asnaeyrunum mánuðum saman áður en það fer á biðlista og svo þegar það fer á biðlista þá fær það nákvæmlega þrjá mánuði upp á dag. Hvers vegna er það sett á nákvæmlega þrjá mánuði upp á dag? Jú, til þess að það fari ekki erlendis, vegna þess að eftir þrjá mánuði má það fara erlendis í aðgerð sem er þrisvar sinnum dýrara. Ég hélt, þegar verið var að semja um þetta, að tilgangurinn væri sá að forgangsraða líka svolítið þeim sem eru í vinnu til að reyna að ná lágmarka þann tíma sem viðkomandi verður frá vinnu svo hann detti ekki út af vinnumarkaðnum. Því lengur sem þú ert á biðlista eftir aðgerð og þegar biðin fer að skipta mánuðum og jafnvel árum, þá ertu sennilega að framleiða einhvern inn í örorkukerfið. Ég er alveg sannfærður um að það getur ekki verið tilgangurinn með þessum aðgerðum.
Það er eitt gott hérna sem við tókum inn. Það verður aukið framlag um 200 milljónir til NPA. Það er mjög gott. Það voru 270 milljónir sem stóðu út af, sem vantaði frá ríkinu, og þarna erum við að setja inn 200 og ég vona heitt og innilega að við förum að klára það mál og hætta að tala um þessa einstaklinga sem kostnað. Við þurfum líka að sjá til þess í eitt skipti fyrir öll að þeir sem þurfa á þessari þjónustu að halda séu ekki fluttir hreppaflutningum landshorna á milli og settir á hjúkrunarheimili, jafnvel fertugir einstaklingar. Það er á hreinu að það vill enginn, ekki nokkur maður, vera í þeirri aðstöðu.
Jú, svo getum við fagnað því að það er verið að sjá til þess og ganga núna endanlega frá 70.000 kr. eingreiðslu, skatta- og skerðingarlaust, til öryrkja og versta setta hópsins í ellilífeyriskerfinu. Eins og kerfið er byggt upp þá er það þannig að um leið og öryrki verður 67 ára þá verður hann heilbrigður, hættir að vera öryrki og verður heilbrigt gamalmenni í boði ríkisstjórnarinnar. Mikil eru völd þeirra að geta sagt að það hverfi allt sem varð þess valdandi að viðkomandi varð öryrki, vegna þess að það eru eiginlega í sjálfu sér mun verri aðstæður sem þessi hópur fer í, sérstaklega þeir sem eru fæddir fatlaðir og hafa verið í þessu kerfi allt sitt líf. Framfærsla þeirra lækkar stórlega. Það er okkur til skammar að við skulum vera með þannig kerfi að þeir sem hafa reynt að tóra einhvern veginn í þessu kerfi verða enn verr settir þegar þeir eru orðnir ellilífeyrisþegar. Þetta er það sem við þurfum að breyta og jú, það er talað um að þetta muni breytast í starfsgetumatskerfinu sem er fram undan. Ég hef ekki mikla trú á, því miður. Það er ekki alveg að virka eins og það er sett upp og það þarf að endurskoða það vel og vendilega.
Að öðru leyti vil ég bara segja að við erum komin á þann stað, sem betur fer, að þetta er í síðasta skipti sem við þurfum að fjalla um fjárlög þessarar ríkisstjórnar. Vonandi kemur ný ríkisstjórn með fjárlög sem verða þess valdandi að það sé virkilega tekið á kjaragliðnun almannatrygginga, sérstaklega varðandi eldri borgara, því að það verður bara að segjast eins og er að eldri borgarar hafa ekki fengið krónu aukalega öll þessi sjö ár frá þessari ríkisstjórn. Það er verið að vísu að hækka núna frítekjumarkið úr 25.000 kr. í 36.500 kr. Við vildum fara beint með það í 100.000 kr. strax, það er bara sanngjarnt og hefði verið mjög eðlilegt. Með því hefðu þeir náð inn konum sérstaklega sem eru á lágum lífeyri. Það á ekki að vera hægt að nota þennan lága lífeyri til að skerða. Og það sem er kannski það sorglega við það er að þessi lági lífeyrir er líka notaður til að skerða desemberuppbót og orlofsuppbót, sem er allt annar hlutur. Það er okkur eiginlega til háborinnar skammar að við skulum vera með þannig kerfi vegna þess að við erum ekki með kerfið fyrir launþega þannig að einhverjar aðrar tekjur skerði orlofs- eða desemberuppbót þeirra en einhverra hluta vegna virðist þurfa að hafa það í kerfinu hjá þeim sem eru verst settir. Ef við erum á annað borð að borga út desember- eða orlofsuppbót þá á hún að koma óskipt, það borga jú allir skatta af þessu, það á ekki að skerða hana. Ég vona svo heitt og innilega að það verði þannig að næst þegar við tölum um fjárlög þá sé svona hlutir leiðréttir.