þingsköp Alþingis.
Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991. Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti frá skrifstofu Alþingis.
Með þessu frumvarpi eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um þingsköp Alþingis. Í fyrsta lagi er lagt til að treysta grundvöll undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa þannig að kveðið verði á um valdheimildir hennar og áréttuð þau viðmið sem nefndinni ber að fylgja um verklagsreglur sem setja þarf um störf hennar. Með því er brugðist við ábendingum í greinargerð undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa sem birtist 23. nóvember 2021 og dómi Mannréttindadómstóls Evrópu um framkvæmd alþingiskosninga í Norðvesturkjördæmi 25. september 2021. Þá eru lagðar til orðalagsbreytingar í samræmi við kosningalög, nr. 112/2021.
Í öðru lagi er lagt til að Alþingi kjósi í framtíðarnefnd að loknum kosningum sem starfi til 31. desember 2025.
Nefndin telur mikilvægt að þær breytingar á þingsköpum sem lúta að undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa nái fram að ganga svo að styrkja megi lagalega stöðu hennar. Þá telur nefndin einnig rétt að veitt sé nægjanlegt svigrúm til að leggja mat á framhald á starfi framtíðarnefndar sem að óbreyttu hefði lokið störfum í lok þessa kjörtímabils.
Í ljósi framangreinds leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Ágúst Bjarni Garðarsson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Hildur Sverrisdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Hildur Sverrisdóttir rita undir álitið með heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Nefndarálitið er undirritað af þeirri sem hér stendur, formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, Evu Dögg Davíðsdóttur, Sigmari Guðmundssyni, Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, Hildi Sverrisdóttur, Guðmundi Inga Kristinssyni og Þorgils Magnússyni, og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur með fyrirvara.