155. löggjafarþing — 24. fundur, 15. nóv. 2024.
fjárlög 2025.
1. mál
Virðulegi forseti. Við greiðum nú atkvæði um fjárlög sem við í Vinstri grænum komum auðvitað að því að leggja fram hér í haust. Það hafa ákveðnar forsendur breyst við meðferð málsins og ekki síst það sem lýtur að tekjuöflun þannig að við lítum á það sem svo að það hafi orðið ákveðinn forsendubrestur. Þess vegna munum við að sjálfsögðu vera á grænu á öllum góðum breytingum en verðum hins vegar á gulu á því sem lýtur að þeim þáttum sem við teljum ekki góða við þessa málsmeðferð.