155. löggjafarþing — 24. fundur,  15. nóv. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:09]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ríkisstjórnin skilur eftir sig risastóra holu í bókhaldi ríkisins sem hún hefur grafið á síðustu árum. Svona hefur hagstjórnin verið, því miður, og þessi fjárlög eru dæmigerð. Í haust sagði hæstv. fjármálaráðherra að þetta væri allt að koma en þetta hljóp í raun frá þeim rétt eins og ábyrgðin sem þau hafa flúið á undanförnum árum. Og hvert fór þetta? Jú, þetta fór úr 40 milljarða halla í haust í 75 milljarða halla afgreiðslu hér í dag af hálfu ríkisstjórnarinnar.

Góðu fréttirnar eru þær að senn fær þjóðin tækifæri til að velja nýtt upphaf og það verður verkefni næstu ríkisstjórnar að loka þessari holu. Við í Samfylkingunni erum með plan um að loka gatinu, draga úr þenslu og negla þannig niður vextina og munum standa undir þeirri ábyrgð, fáum við til þess traust í kosningunum 30. nóvember. Það þarf að koma ríkissjóði og Íslandi aftur á rétta braut.