fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Við höfum mikið rætt um hlut ríkisfjármálanna í hagstjórn á undanförnum mánuðum og jafnvel árum og margt verið sagt sem illa stenst skoðun, ekki síst í ljósi þeirrar þróunar sem nú er að eiga sér stað þar sem verðbólga fer hratt lækkandi, verðbólguvæntingar eru allar á réttri leið, vextir eru teknir að lækka og allir virðast gera ráð fyrir vaxtalækkun. Viðreisn gerir meira að segja ráð fyrir 1% vaxtalækkun í næstu viku, nema að flokkurinn sé bara að reyna að yfirspila væntingarnar þannig að vaxtalækkunin verði vonbrigði í aðdraganda kosninga. Hv. þm. Kristrún Frostadóttir sagði hér fyrir ári síðan að það væri erfitt að halda því fram að stórkostlegur útgjaldavandi væri til staðar, við afgreiðslu fjárlaga fyrir ári síðan, það væri erfitt að halda því fram í ljósi þess að ríkisútgjöldin hafi sem hlutfall af landsframleiðslu verið stöðug í meðaltali síðustu 20 ára. Orðrétt haft eftir formanni Samfylkingarinnar. Og svo sjáum við núna við þessa afgreiðslu að það er að koma fram skýrsla frá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands um að (Forseti hringir.) við höfum verið með aðhaldssöm (Forseti hringir.) ríkisfjármál. Það er nefnilega rétt sem hæstv. fjármálaráðherra (Forseti hringir.) sagði fyrir ekki löngu síðan: Þetta er allt á réttri leið. Og mun halda áfram á réttri leið nema menn taki U-beygju.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma sem er 1 mínúta í umræðum um atkvæðagreiðslu.)