155. löggjafarþing — 24. fundur,  15. nóv. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[17:15]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Þetta er allt að koma. Ekki taka neinar U-beygjur. Ég man eftir því hérna fyrir tveimur og hálfu ári síðan þegar fyrsti viðbragðspakkinn við verðbólgunni var lagður fram af ríkisstjórninni. Tveimur og hálfu ári síðar þá er þetta allt að koma. Vel gert. Tvö og hálft ár af verðbólgu. Er það þannig sem aðhaldssöm fjárlög virka? Því að það er búið að segja það öll árin: Aðhaldssöm fjárlög. Við vinnum á verðbólgunni, tveimur og hálfu ári síðar. Er þetta ástæðan fyrir því að verðbólgan er að lækka? Eru það þessi fjárlög ofan í samgönguvandann, heilbrigðisvandann, vandann í menntakerfinu og þjónustuskuldina sem allir flokkar eru að tala um í kosningabaráttunni? Getum við þá í alvörunni sagt að við séum að ná árangri miðað við allt sem stendur á okkur alls staðar í samfélaginu um það sem er að? Þannig að já, það má kannski segja að þetta séu aðhaldssöm fjárlög, en eru þetta góð fjárlög? Ég myndi halda ekki. Ég sé alla vega ekki þau skilaboð frá fólki sem er að tala við mig um allt sem þarf að gera, alls staðar.