fjárlög 2025.
Forseti. Það er gott að útskýra hvað er að gerast hérna. Við höfum alltaf afgreitt í lok hvers árs í fjárauka þessa svokölluðu eingreiðslu eða jólabónus til öryrkja, þ.e. þá upphæð sem varð eftir við kerfisbreytingar fyrir nokkrum árum síðan. Ég er einfaldlega að leggja til að sú upphæð verði sett í fjárlög núna fyrir fram þannig að við þurfum ekki að afgreiða þetta eftir á. Þetta varðar tímann frá janúar til og með ágúst af því að í september þá taka við ný lög þar sem þessi upphæð á ekki við lengur. Það er best að hafa þetta núna þannig að við afgreiðum þetta strax þannig að næsta þing þurfi ekki að afgreiða þetta eftir á í desember eða eitthvað svoleiðis með skrýtinni afturvirkri eingreiðslu.