155. löggjafarþing — 25. fundur,  18. nóv. 2024.

útlendingar.

302. mál
[10:12]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Þetta mál sem við erum væntanlega að samþykkja hér í dag snýst um að framlengja tímabundna vernd fyrir flóttafólk frá Úkraínu. Það er auðvitað gott og gilt og ég held að við séum öll sammála um að það sé mikilvægt að tryggja það að fólk búi við ákveðið öryggi um stöðuna sem það er í.

Það eru ákveðnir vankantar á þessari tillögu sem hefur m.a. verið bent á af hálfu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Rauða krossins á Íslandi og fleiri aðila. Með tímabundinni vernd, því úrræði sem fyrirfinnst í okkar lögum og annarra ríkja í Evrópu, er í raun verið að leggja umsókn viðkomandi einstaklinga um alþjóðlega vernd til hliðar. Það er ekki verið að veita þeim alþjóðlega vernd eins og þeim ber, það er verið að leggja hana til hliðar og þeim veitt tímabundið dvalarleyfi á sérstökum grundvelli til tiltekins tíma. Þetta, fyrir einstaklingi sem óskar þess fyrst og fremst að fá staðfestingu á því að hann hafi heimild til dvalar í öruggu landi, er kannski ekki aðalatriðið. Hins vegar er ljóst að fólk verður af ákveðinni réttarvernd þegar það fær ekki þá alþjóðlegu vernd sem því í rauninni ber.

Samkvæmt íslenskum lögum m.a. leiðir þessi breyting til þess að tíminn sem líður fram að því að einstaklingar geti farið að safna sér inn réttindum fyrir ótímabundnu dvalarleyfi t.d. og ríkisborgararétti lengist úr þremur í fimm ár. Það er nefnilega svo að í ákvæðinu um fjöldaflótta í lögum um útlendinga er undantekning á þeirri reglu að dvalarleyfi af þessu tagi, svokallað dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, geti verið grundvöllur fyrir ótímabundnu dvalarleyfi. Þetta þýðir að þau þrjú ár sem einstaklingar dvelja á þessu dvalarleyfi, nú fimm eftir þá breytingu sem við erum að fara að samþykkja hér, það er ekki fyrr en að fimm árum liðnum sem fólk fer að vinna sér inn réttindi til ótímabundinnar dvalar á Íslandi. Ég tel að það hafi mögulega ekki verið ætlun allra sem styðja þetta mál að lengja í þeirri biðstöðu sem flóttafólk frá Úkraínu er í á grundvelli þessa ákvæðis.

Því hef ég lagt fram breytingartillögu á ákvæðinu, breytingartillögu á frumvarpinu sem bætir við breytingu. Ég tel að þetta standist kröfur stjórnarskrárinnar um þrjár umræður þar sem þetta er nægilega skylt efni frumvarpsins og ég tel þetta vera ákveðna leiðréttingu á misskilningi marga þar sem ég er að leggja til að þessi tímabundnu dvalarleyfi telji inn í ótímabundið dvalarleyfi. Þetta þýðir ekki það að einstaklingar öðlist réttindi til ótímabundins dvalarleyfis frá fyrsta degi heldur byrja þau að vinna sér inn réttindi, því að klukkan byrjar að tikka.

Ég hvet ykkur til að skoða þetta. Ég hef trú á því, eins og ég sagði, að það að vera að lengja í óvissunni sé ekki það sem fólk ætlaði sér með þessu frumvarpi og tel mig þar með vera að leggja til ákveðna leiðréttingu á markmiðum frumvarpsins með þessari breytingartillögu. Ég vona að þetta sé skýrt og hvet ykkur til að samþykkja þetta. Ég held að þetta sé eitthvað sem við ættum að geta sammælst um.