155. löggjafarþing — 25. fundur,  18. nóv. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[10:17]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir breytingartillögu frá meiri hluta fjárlaganefndar vegna tilfærslu á gildistíma, að gildistími Mannréttindastofnunar færist fram um tvo mánuði, þannig að 1.–6. liðir tillögunnar eru þá bara tilfærslur innan stjórnsýslunnar, milli flokka.

Síðan er breyting, það urðu smámistök varðandi Píeta-samtökin. Það var ætlunin þar að afgreiða í gegnum fjárlaganefnd 35 milljónir fyrir næsta ár til Píeta-samtakanna. Við afgreiddum bara 10 milljónir á föstudaginn. Við héldum að það kæmu 25 milljónir í gegnum ráðuneytið þannig að við leiðréttum þá það sem ætlunin var að gera. Það bætast 25 milljónir við til Píeta-samtakanna, til viðbótar við þær 10 sem komu fram á föstudaginn. Þetta eru breytingarnar sem liggja fyrir í þessari breytingartillögu.