155. löggjafarþing — 25. fundur,  18. nóv. 2024.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

334. mál
[10:25]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, nr. 16/2024. Málið er frumkvæðismál hv. efnahags- og viðskiptanefndar og með því er lagt til að rýmkuð verði heimild til að víkja frá skilyrði laganna um að eigandi húsnæðis skuli hafa þar skráð lögheimili. Þannig verði sérstaklega mælt fyrir um í lögunum að heimilt verði að víkja frá skilyrði um lögheimili ef eigandi húsnæðis festi kaup á því í þeim tilgangi að aðstoða nána fjölskyldumeðlimi við að eignast heimili. Það er sem sagt verið að rýmka frest til uppkaupa. Þetta er meðal þeirra hnökra sem efnahags- og viðskiptanefnd fékk á sitt borð við framkvæmd þessara laga. Eflaust eru einhver fleiri dæmi eða hnökrar sem kynnu að koma til skoðanir nýs þings, enda hefur verið full samstaða um það í þinginu, þverpólitísk, að koma til móts við Grindvíkinga við þessar erfiðu aðstæður. En með breytingunni er ekki verið að hrófla við öðrum skilyrðum laganna. Því er óbreytt að þau gilda einungis um íbúðarhúsnæði innan þéttbýlismarka Grindavíkur sem er í eigu einstaklinga.

Ég legg til að frumvarpið gangi til 2. umræðu.