155. löggjafarþing — 25. fundur,  18. nóv. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[10:29]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Hér kemur eins og skrattinn úr sauðarleggnum gríðarlega mikil hækkun á kolefnisgjöldum sem ekki var gert ráð fyrir þegar málið var lagt fram í byrjun, sem sagt bandormurinn. Bara til að halda því til haga þá endar gjald sem upphaflega stóð í 13,45 kr. í 21,40 eftir þessa breytingu. Gjald sem stóð í 11,70 endar í 18,60 og svona koll af kolli. Þetta er auðvitað gríðarlega mikil hækkun og kaldhæðnislegt að þetta sé lausnin til að bregðast við mögulegu fýlukasti hæstv. fjármálaráðherra vegna afgreiðslu á kílómetragjaldi. En það er ágætt að það liggi fyrir að hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir leiði þetta hér inn í þingsalinn.