155. löggjafarþing — 25. fundur,  18. nóv. 2024.

skattar og gjöld.

300. mál
[10:32]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Herra forseti. Í þessu plaggi okkar er persónuafslátturinn margumtalaði sem mun ekki taka gildi, persónuafsláttur lífeyrisþega sem eru búsettir erlendis sem mun ekki taka gildi núna um áramótin frekar en endranær vegna þess að það er hreinlega búið að fella lagagreinina niður, 11. gr. a, sem gleður okkur örugglega öll og við hefðum gjarnan viljað vera skærgræn þar. Flokkur fólksins þakkar fyrir það en er á gulu í málinu í heild.