fjáraukalög 2024.
Herra forseti. Mig langar bara rétt að koma upp hér. Þetta eru fimmtu fjáraukalögin á þessu ári, sami fjöldi og var á árinu 2020, fimm fjáraukar. Við höfum verið að eiga við stór og mikil mál á þessu ári. Það vill svolítið gleymast þegar við erum að ræða um fjármál ríkisins og efnahagslega stöðu ríkissjóðs og samfélagsins okkar. Ég vildi rétt koma og vekja athygli á því að þetta er fimmti fjáraukinn. Þrír af þeim hafa snúið að Grindavík. Ég vil aðeins leiðrétta umræðuna eins og hún er stundum í dag í samfélaginu okkar um ríkisfjármálin. Það er eins og ekkert hafi gerst hér síðasta árið eða undanfarin fimm ár.
Að lokum vil ég bara þakka fjárlaganefnd fyrir góða samvinnu og góða vinnu. Ég held að við getum verið stolt af því, undir sérstökum aðstæðum sem hafa verið þetta haustið, að klára störf nefndarinnar með þeim hætti sem hefur verið gert á þessu hausti.