155. löggjafarþing — 27. fundur,  18. nóv. 2024.

þingfrestun.

[11:33]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Hv. alþingismenn. Brátt lýkur störfum þessa þings sem er hið síðasta á kjörtímabilinu. Forseti Íslands féllst á þingrofsbeiðni hæstv. forsætisráðherra þann 17. október síðastliðinn og boðað hefur verið til alþingiskosninga þann 30. þessa mánaðar. Þann dag fellur niður umboð okkar sem kjörin voru til starfa á Alþingi í síðustu þingkosningum og nýkjörnir þingmenn taka við.

Það tíðkaðist lengi að þingkosningar færu fram síðla vetrar, að vori eða um sumar. Komandi kosningar verða hins vegar þær fjórðu í röð haustkosninga frá 2016 þannig að það kann að vera að myndast nýtt mynstur hvað þetta snertir. Þingkosningar hafa einu sinni áður farið fram í nóvember. Það var árið 1919, en þá var kosið til þings um miðjan nóvember. Þá fóru alþingiskosningar fram í byrjun desember 1979 í kjölfar stjórnarslita og þingrofs.

Eins og jafnan áður hefur nokkur hópur þingmanna ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri og aðrir hafa ekki hlotið sæti svo ofarlega á framboðslistum að líkur séu á að þeir nái kjöri. Við bætist svo auðvitað sú óvissa sem jafnan fylgir þingkosningum.

Allt er þetta kunnuglegt og mannaskipti af þessu tagi eru fastur liður í stjórnmálalífinu. Í nokkrum undanförnum kosningum, allt frá árinu 2007, hefur orðið mikil endurnýjun á þingheimi í hverjum kosningum, mest árið 2016 þegar 32 nýir þingmenn tóku sæti að loknum þingkosningum. Á þessu tímabili, frá 2016, hefur endurnýjunin raunar oftast verið milli 40 og 50%. Það má geta þess að frá árinu 2013 hafa öll kjörtímabil, að einu undanskildu, verið skemmri en þau fjögur ár sem stjórnarskrá og lög gera ráð fyrir að líði á milli þingkosninga hið mesta.

Tæpur fjórðungur þingmanna á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka sækist ekki eftir endurkjöri í komandi kosningum og er sá sem hér talar í þeim hópi. Hins vegar má geta þess að mér telst til að 41 sitjandi þingmaður sitji í fyrsta eða öðru sæti á framboðslistum stjórnmálaflokkanna og í þessum hópi, í tveimur efstu sætunum, eru einnig átta fyrrverandi þingmenn, sem ekki hafa átt hér sæti á yfirstandandi kjörtímabili. Fleiri núverandi þingmenn eru auðvitað í sætum á framboðslistum, sem gætu skilað þeim áframhaldandi setu á þingi, en hvernig sem fer 30. nóvember eru allar líkur á því að það verði mikil endurnýjun í þingmannahópnum

Þingið, sem nú er að ljúka, hið 155. í röð löggjafarþinga, hófst með venjulegum hætti í haust en um miðjan október urðu þeir atburðir á vettvangi stjórnmálanna sem ég gat um í upphafi og leiddu til stjórnarslita og þingrofs. Eftir að svo var komið hefur megináherslan í þingstörfunum verið á umfjöllun um fjárlög og fjárlagatengd mál og önnur þingmál sem ekki var talið að gætu beðið nýs þings. Nú hafa fjárlög verið sett og gengið frá öðrum málum sem nauðsynlegt var að ljúka fyrir kosningar.

Ég vil þakka þingmönnum öllum framlag þeirra á þessum vettvangi og formönnum þingflokka alveg sérstaklega sem og varaforsetum og áheyrnarfulltrúum í forsætisnefnd. Þá vil ég líka þakka nefndarmönnum í fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd og öðrum þeim þingnefndum sem komið hafa að afgreiðslu mála. Þingmenn hafa unnið að því að ná niðurstöðu í þessum vandasömu málum við óvenjulegar aðstæður, bæði vegna hins skamma tíma sem gefist hefur til vinnunnar og vegna þess að ekki hefur verið fyrir hendi stjórnarmeirihluti undanfarnar vikur hefur því reynt meira á samvinnu þingmanna en við venjulegar aðstæður.

Eins og fram hefur komið þá er ég í hópi þeirra þingmanna sem láta mun af störfum þann 30. nóvember. Ég hef átt sæti á þingi í 21 ár og sjö mánuði, sjö kjörtímabil, og á þessum tíma þá hefur að sjálfsögðu gengið á ýmsu í stjórnmálalífinu og störfum þingsins. Stundum hefur gengið vel og stundum illa. Stundum hafa átök verið hörð en svo hafa komið friðsamlegri kaflar inn á milli. En hvað sem því líður er ég afar þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í þingstörfunum allan þennan tíma. Það eru mikil forréttindi að fá umboð kjósenda til að sitja á Alþingi og vinna að hugsjónum sínum og hagsmunamálum þjóðarinnar á þessum vettvangi. Það hafa líka verið forréttindi að fá tækifæri til að kynnast og vinna með öllu því góða fólki sem setið með mér á þingi á þessum tíma, bæði fyrr og nú. Fyrir þau góðu kynni er ég einstaklega þakklátur.

Ég vil líka þakka starfsfólki Alþingis fyrir frábært samstarf allan þennan tíma sem ég hef gegnt þingmennsku. Skrifstofa Alþingis er og hefur verið alveg sérstaklega vel mönnuð og starfsfólk þingsins sinnir sínu vandasama hlutverki af einstakri fagmennsku, hæfni og ljúfmennsku. Þessu hef ég kynnst í ýmsum þeim verkefnum sem mér hafa verið falin hér innan þings en auðvitað mest undanfarin þrjú ár á tíma mínum sem forseti Alþingis. Ég veit að ég tala fyrir hönd allra þingmanna þegar ég færi skrifstofustjóra og öðrum starfsmönnum þingsins okkar bestu kveðjur og þakkir við lok þessa þings og þessa kjörtímabils.

Að þessu sögðu óska ég öllum alþingismönnum velfarnaðar, hvort sem þeir verða hér áfram að kosningum loknum eða hverfa til annarra verkefna. Margir munu einbeita sér næstu tvær vikurnar og kosningabaráttu og vonast ég auðvitað til þess að hún verði bæði málefnaleg og heiðarleg. Það er líka von mín og trú að nýtt þing muni að kosningum loknum rækja störf sín af vandvirkni og trúmennsku, landi og þjóð til heilla.