155. löggjafarþing — 27. fundur,  18. nóv. 2024.

þingfrestun.

[11:43]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Forseti Íslands gjörir kunnugt:

„Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 155. löggjafarþings, frá 18. nóvember 2024 eða síðar, ef nauðsyn krefur

Gjört í Reykjavík, 18. nóvember 2024.

Halla Tómasdóttir

_________________

Bjarni Benediktsson.

 

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis 155. löggjafarþings er frestað.

Ég vil þakka alþingismönnum og starfsfólki Alþingis fyrir ágætt samstarf á þessu löggjafarþingi sem reyndist styttra en til stóð. Ég hvet alla landsmenn til að nýta kosningarrétt sinn í komandi alþingiskosningum og hvet öll framboð til drengilegar kosningabaráttu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)