forseti Íslands setur þingið.
Hinn 17. janúar síðastliðinn var gefið út svofellt bréf:
„Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til fundar þriðjudaginn 4. febrúar 2025.
Um leið og ég birti þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni er hefst kl. 13.30.
Gjört í Reykjavík, 17. janúar 2025,
Halla Tómasdóttir.
________________
Kristrún Frostadóttir.
Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 4. febrúar 2025.“
Samkvæmt bréfi því sem ég hef nú lesið lýsi ég því yfir að Alþingi Íslendinga er sett.
Kæru alþingismenn. Ég býð ykkur velkomin til setningar nýs þings og ykkar mikilvægu starfa sem löggjafar þjóðarinnar.
Hver þingsetning er upphaf nýrrar vegferðar. Ég óska nýrri ríkisstjórn velfarnaðar í öllum hennar störfum, sem og þingmönnum öllum.
Hlutfallslega fleiri nýir þingmenn taka nú sæti á Alþingi en orðið hefur í meira en hálfa öld. Það er þakkarvert að fólk skuli vera tilbúið til að taka að sér krefjandi störf í þágu þjóðarinnar og að kjósendur hafi úr breiðum hópi að velja. Nýir þingmenn koma með ný viðhorf og endurnýja þann grundvöll hugmynda sem þingið starfar á. Á sama tíma má ekki vanmeta kunnáttu og reynslu hinna sem fyrir eru á þingi. Gangverk þingsins við undirbúning og setningu laga er flókið og verður ekki lært í skjótri svipan. Því meiri sem endurnýjunin er, því brýnna er að hin reynslumeiri deili þekkingu sinni og færni af örlæti og þolinmæði. Það sama má segja um þá sem nú fara úr stjórn í stjórnarandstöðu. Málefnaleg gagnrýni og aðhald stjórnarandstöðu eru sannarlega mikilvægir þættir í starfi þingsins. Þar skiptir miklu að halda af sanngirni og rökfestu á málum. En hlutverk stjórnarandstöðunnar er ekki einskorðað við gagnrýni. Farsæl miðlun reynslu og þekkingar er mikilvæg öllum stjórnarháttum og hornsteinn heilbrigðs lýðræðis. Góðar hugmyndir koma ekki aðeins frá þeim sem sitja í meiri hluta. Það er brýnt að vera vakandi fyrir þörfum tillögum og veita þeim brautargengi, sama hver ber þær fram. Ólafur Thors sagði á sínum tíma: „Það á aldrei að láta gott mál gjalda málshefjanda.“
Ég bið ykkur að vera ekki svo upptekin af því hvort þið tilheyrið 36 manna meiri hluta eða 27 manna minni hluta að þið missið sjónar af því að þið 2 eruð fyrst og fremst 63 þingmenn, öll með það sameiginlega markmið að vinna þjóðinni gagn og standa vörð um hana.
Um leið og ég býð þingheim velkominn til starfa, færi ég öllum sem nú kveðja Alþingi bestu þakkir fyrir þeirra framlag. Ég óska þeim allra heilla í hverju sem þau taka sér fyrir hendur og vænti þess að sú reynsla sem þau hafa öðlast sem þingmenn verði þeim gott veganesti.
Starf alþingismannsins er síður en svo auðvelt. Hér verður að ríkja ákveðin formfesta og þingmenn þurfa að kunna og vilja fara að þeim reglum. Á sama tíma þurfa þingmenn að vera skapandi og framsýnir, skynja æðaslátt samfélagsins og sjá hvert þróunin stefnir og hvernig hægt er að beina landsmönnum á farsæla braut. Það er ekki heiglum hent, því málefnin eru óteljandi og það er krefjandi að kynna sér þau eins og þarf. Það er sannarlega vandaverk að setja lög um mál sem voru kannski ekki til fyrir fáeinum árum, þar sem jafnvel þarf að búa til ný orð til að ná utan um fyrirbrigðin og læra að hugsa á nýjan hátt til að geta nálgast nýjan veruleika. Samspil geira samfélagsins verður sífellt flóknara, keðjuverkunin meiri og á sama tíma er erfiðara að greina milli vandaðra upplýsinga og markleysu. Jafnframt því að takast á við breytingar, sem þegar eru orðnar, þarf að horfa fram í tímann: hvaða breytinga má vænta á næstu árum og áratugum? Nú eða á næstu dögum og vikum ef tekið er mið af þróun mála á alþjóðlegum vettvangi að undanförnu. Hvernig búum við samfélagið undir þær? Þessum áskorunum þarf að mæta ekki einungis með nýju tungutaki heldur með nýrri hugsun. Þetta eru ærin verkefni fyrir samhentan hóp sem hjálpast að við að leita bestu lausna til skemmri sem lengri tíma. Það kallar í senn á samstarfsvilja, frjótt ímyndunarafl, framsýni og öguð vinnubrögð. Þingmennska er jafnvægislist sem krefst bæði virðingar fyrir formfestu og sköpunargáfu, sem og hugrekkis til að hugsa vinnulagið upp á nýtt.
Kæru þingmenn. Ykkur er treyst til að valda þessari jafnvægislist. Ég veit að þið munuð öll vinna fyrir land og þjóð af heilindum og kappkosta að ávinna Alþingi traust og virðingu fólksins í landinu. Traust og virðing byggja fyrst og fremst á heiðarleika í málflutningi og framkomu. Það er ekki nóg að vera fylginn sér, við þurfum líka að gaumgæfa ólík sjónarmið, greina þau með rökum hugar og hjarta og taka svo ígrundaða afstöðu. Það er engin skömm að skipta um skoðun, ef það er gert að athuguðu máli. Í norskri fjallamennsku er viðtekið orðtæki sem hefur bjargað mörgum mannslífum: „det er ingen skam at snu“. Snúðu við frekar en að rata í ógöngur af þrjósku og einstrengingshætti. Finnum færa leið, betur sjá augu en auga, hlustum hvert á annað.
Við komum nú saman þegar daginn er tekið að lengja og sól hækkar á lofti. Á himni má þó einnig sjá þungbúin ský — sum óþægilega nærri okkur. Þróun mála undanfarið vekur upp spurningar um heimsmynd Vesturlanda sem grunnur var lagður að í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar. Sú heimsmynd er byggð á alþjóðasáttmálum og lögum. Upphaflega var kerfið byggt upp til að 3 tryggja valdajafnvægi en með tímanum hefur alþjóðlegt samstarf einnig lagt grunn að sameiginlegum áttavita fyrir framþróun vísinda og varðveislu menningar og þar með orðið undirstaða heilsu, menntunar, og mannréttinda. Ísland nýtur góðs af alþjóðlegri samvinnu og það er eðlilegt að spyrja um áhrif þess á okkur ef alþjóðastofnanir njóta minni stuðnings og alþjóðalög eru virt að vettugi. Mögulega munuð þið, ágætu þingmenn, á næstu misserum þurfa að taka veigamiklar ákvarðanir um framtíð og öryggi lands og þjóðar. Þá er gott að geta samnýtt reynslu og þekkingu og innleitt vinnubrögð sem hvetja til samvinnu, ekki aðeins þvert á flokka, heldur við sem flesta sem málin varða. Við búum vel að því að eiga færa sérfræðinga og ráðgjafa, njóta náins og trausts samstarfs við nágrannaþjóðir, og njóta velvildar og virðingar á alþjóðavettvangi.
Áskoranirnar eru vissulega margar en tækifærin eru líka mörg. Skáldið Theodóra Thoroddsen minnir okkur á að hugurinn ber okkur hálfa leið í heimana nýja. Hugsun og orð eru til alls fyrst en svo þarf að láta verkin tala. Það er mikilvægur hluti af jafnvægislist Alþingis að geta samtvinnað hugsun, orð og gjörðir. Ég óska ykkur velfarnaðar í því að teikna upp mynd þess samfélags sem þið viljið sjá og jafnframt að leggja ykkar af mörkum til að hún verði að veruleika.
Alþingi og ríkisstjórn óska ég allra heilla og bið ykkur að rísa úr sætum og minnast fósturjarðarinnar.
[Þingmenn risu úr sætum og forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]