Kosning forseta skv. 1. mgr. 3. gr. þingskapa.
Nú fer fram kosning forseta Alþingis. Samkvæmt 1. málsgr. 3. gr. þingskapa eru þeir einir í kjöri sem tilnefndir eru. Mér hefur borist ein tilnefning um 11. þm. Suðvest., Þórunni Sveinbjarnardóttur. Eru aðrar tilnefningar? Aðrar tilnefningar hafa ekki borist. Þórunn Sveinbjarnardóttir er því ein í kjöri. Þar sem aðeins einn er í kjöri er það ætlun forseta að láta kosninguna fara fram með atkvæðagreiðslukerfinu. Ef ekki eru athugasemdir við þennan hátt á kosningunni fer atkvæðagreiðslan fram með þessum hætti.
Kerfið okkar er þannig stillt að jafna má við leynilega kosningu. Töflurnar á veggjunum munu aðeins sýna hverjir hafa neytt atkvæðisréttar síns en ekki hvernig þeir greiddu atkvæði og sama gildir um geymsluminni tölvunnar. Þeir sem kjósa Þórunni Sveinbjarnardóttur ýti á já-hnappinn en þeir sem vilja skila auðu ýti á hnappinn sem merktur er: Greiðir ekki atkvæði. Gult ljós kviknar við miðhnappinn þegar atkvæði hefur verið greitt, sama á hvorn hnappinn er ýtt, og eins kviknar aðeins gult ljós á veggtöflunni.
[Gengið var til forsetakosningar. Atkvæði féllu þannig að Þórunn Sveinbjarnardóttir, 11. þm. Suðvest., hlaut 57 atkvæði, 1 þingmaður greiddi ekki atkvæði.]
Samkvæmt þessu er Þórunn Sveinbjarnardóttir rétt kjörin forseti Alþingis. Ég óska henni allra heilla og velfarnaðar í störfum og bið hana að ganga til forsetastóls og taka nú við stjórn fundarins.