afsal þingmennsku.
Forseta hefur borist bréf frá 4. þm. Reykv. n., Þórði Snæ Júlíussyni, þar sem hann segir af sér þingmennsku frá og með deginum í dag. Bréfið er svohljóðandi:
„Með bréfi þessu segi ég af mér þingmennsku frá og með 4. febrúar 2025 í samræmi við fyrri yfirlýsingu þar um.
Virðingarfyllst,
Þórður Snær Júlíusson.“
Við þingmennskuafsal Þórðar Snæs Júlíussonar tekur Sigmundur Ernir Rúnarsson sæti hans á Alþingi og verður 11. þm. Reykv. n., en Dagur B. Eggertsson verður 4. þm. kjördæmisins og Dagbjört Hákonardóttir 8. þm. Reykv. n.
Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og býð ég hann velkominn til starfa.
Forseta hefur einnig borist bréf frá 1. þm. Suðvest., Bjarna Benediktssyni, dagsett 3. febrúar, þar sem hann segir af sér þingmennsku. Bréfið hljóðar svo:
„Með bréfi þessu afsala ég mér þingmennsku þar sem ég hef ákveðið að stíga út af sviði stjórnmálanna og mun innan fárra vikna hætta sem formaður í Sjálfstæðisflokknum. Ég þakka þingmönnum fyrir gott samstarf í rúma tvo áratugi, skrifstofustjóra þingsins og starfsfólki öllu fyrir einstaka fagmennsku og góð samskipti alla tíð. Þingheimi óska ég velfarnaðar í mikilvægum störfum fyrir land og þjóð.
Garðabæ, 3. febrúar 2025,
Bjarni Benediktsson.“
Af þessu tilefni vil ég færa Bjarna Benediktssyni þakkir fyrir störf hans á Alþingi á undangengnum árum og áratugum. Ég óska honum og fjölskyldu hans, fyrir hönd okkar allra, farsældar í þeim störfum sem hann tekur sér fyrir hendur.
Við þingmennskuafsal Bjarna Benediktssonar tekur Jón Gunnarsson sæti á Alþingi og verður 13. þm. Suðvest., Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir verður 1. þm. kjördæmisins, Bryndís Haraldsdóttir verður 5. þm. kjördæmisins og Rósa Guðbjartsdóttir. 9. þm. Suðvest.,
Jón Gunnarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og býð ég hann velkominn til starfa á ný.