156. löggjafarþing — 1. fundur, 4. feb. 2025.
tilkynning um stefnuræðu forsætisráðherra.
Dagskrá þingsetningarfundar er tæmd. Til næsta fundar verður boðað með dagskrá. Hann verður annað kvöld, miðvikudaginn 5. febrúar og hefst kl. 19:40. Þá flytur hæstv. forsætisráðherra stefnuræðu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, sbr. 62. gr. þingskapa, og fram fara umræður um hana.
Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Umferðir verða tvær og verður ræðutími 6 mínútur í hvorri umferð en forsætisráðherra hefur 12 mínútur til framsögu. Umræðunni verður útvarpað og sjónvarpað.