156. löggjafarþing — 2. fundur,  10. feb. 2025.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[20:12]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Forseti. Góðir landsmenn. Eftir sjö erfið ár, þar sem við sátum uppi með kerfisstjórn sem státaði sig af því að vera ópólitísk, kviknaði von þegar hið óhjákvæmilega gerðist loksins. En í staðinn fengum við nýja og jafnvel enn meiri kerfisstjórn. Systurflokkarnir, Viðreisn og Samfylking, voru búnir að ákveða að mynda saman stjórn, hvað sem það kostaði. Flokkarnir þurftu bara einn makker en hvorki Píratar né Framsóknarflokkurinn reyndust í aðstöðu til að taka það að sér. En þá var litið til Flokks fólksins sem bað ekki um mikið. Svipað og Kalli í sögunni um Kalla og sælgætisgerðina vildi flokkurinn bara fá að vera með, sjá hvernig nammið væri framleitt og kannski fá að smakka. Stóru kosningaloforðin fuku út í veður og vind. Útskýrt var að ekki yrði staðið við 450.000 kr. fyrir alla skatta- og skerðingarlaust enda hefði flokkurinn ekki fengið meiri hluta þingmanna. Þetta hefði mátt koma fram fyrir kosningar, svona fyrir fólkið, kjósendur sem studdu Flokk fólksins, en það taldist líklega skaðleg hreinskilni á þeim tímapunkti. Nývígður ráðherra flokksins útskýrði að hann myndi að sjálfsögðu styðja bókun 35, skömmu eftir að hafa bent á einu sinni sem oftar að hún væri stórhættuleg og bryti í bága við stjórnarskrá. Sami ráðherra tók svo stoltur fyrstu skóflustunguna að borgarlínunni og Fossvogsbrú sem flokkurinn hafði fram að því reynt sitt besta að gagnrýna á sama hátt og Miðflokkurinn. Brúin og framkvæmdin sem skömmu áður hafði verið fullkomin fásinna var nú kynnt sem stórkostlegt framfaraskref enda hafði flokkurinn fengið að vera með í ríkisstjórn. Áformuð sala á restinni af hlut ríkisins í Íslandsbanka var stórkostlegt hneyksli að mati formanns Flokks fólksins sem útskýrði að til stæði að drepa og grilla gullgæsina. Það breyttist um leið og formaðurinn settist í ráðherrastól. Gripið var í það hálmstrá að söluheimildin hefði komið fram í nýjum fjárlögum síðustu ríkisstjórnar. Vissi hinn nýi ráðherra ekki að heimildir til sölu bæði Íslands- og Landsbanka hafa verið í fjárlögum árum saman? Og hvað ætli Flokkur fólksins geri með orkupakka fjögur sem honum hefur verið tíðrætt um lengi? Mun hann sýna sömu prinsippafstöðu og Miðflokkurinn í Noregi og leggja stjórnarsamstarfið að veði? Telur einhver það líklegt?

Heimurinn er breyttur, eðlisfræðin og raunveruleikinn er allt öðruvísi en áður var af því að Flokkur fólksins er kominn í ríkisstjórn. Kalla líður vel í sælgætisgerðinni en Viðreisn og Samfylking mættu hafa það í huga að sagan endaði með því að Kalli tók stjórn á verksmiðjunni.

Viðreisn tók strax að sér hlutverk nokkurs konar upplýsingafulltrúa Flokks fólksins. Það var heppilegt fyrir flokkinn því það vildi svo til að fjármálaráðherra Viðreisnar hafði líf Flokks fólksins í hendi sér. En auðvitað var það ekki aðalmálið hjá Viðreisn, það vita allir. Allir vissu hvað væri aðalmálið hjá Viðreisn þótt það hafi reyndar ekki mátt nefna það fyrir kosningar. En það var svo staðfest strax í upphafi þegar Viðreisn ákvað að gera það að sínu fyrsta verkefni að halda til Brussel og hitta þar einhverja pótintáta eða talsmenn þeirra með það helst að markmiðið að útskýra það fyrir landsmönnum að það væri vel hægt að taka upp aðlögunarviðræðurnar þar sem Össur Skarphéðinsson skildi við þær fyrir rúmum 12 árum. Þetta er afskaplega sérkennileg nálgun. Hvers vegna ætti hinn nýi forsætisráðherra, sem sýndi það hyggjuvit að sópa Evrópusambandinu undir teppið og stappa á bungunni með góðum árangri, vilja eigna sér þá eftirgjöf íslenskra hagsmuna sem hófst formlega fyrir nærri 16 árum?

Af Samfylkingunni er það annars helst að frétta að hún er lent í sömu stöðu og Bláa lónið. Planið er horfið. Og áður en sjálf stefnuræðan var loksins haldin nötrar allt og skelfur í borgarmálunum einu sinni sem oftar. Það hlýtur að vera einhvers konar Íslandsmet að stjórnarsamstarf komist í uppnám áður en það byrjar. Að öðru leyti snúast málin aðallega um að þekktustu leikararnir í leikhúsi Samfylkingarinnar hafa verið gerðir að aukaleikurum og síðan breytt í statista.

En þrátt fyrir að forsætisráðherra hafi sagt okkur frá því í ræðu sinni að hann hafi heimsótt fólkið á gólfinu, eins og það var orðað, þá gleymir forsætisráðherrann ekki Flokki fólksins. Ég hef hlustað á margar stefnuræður forsætisráðherra, skrifaði nokkrar og lesið enn aðrar en ég hef aldrei heyrt forsætisráðherra ljúka stefnuræðu, hvað þá þeirri fyrstu, á því að réttlæta það sérstaklega í löngu máli að einn af forystumönnum ríkisstjórnarinnar skuli vera í ríkisstjórninni. Enda var tilkynnt um leið og ríkisstjórnin kynnti málaskrá sína að allir stjórnarþingmenn yrðu reknir í réttirnar á sameiginlegum vikulegum fundum svo allir viti til hvers er ætlast. Þetta er hugsanlega skynsamlegt, að það þurfi að smala köttum. Gömlu stjórnarflokkarnir fóru einu sinni saman á fund á Þingvöllum. Það breytti engu.

Ég óska þó nýkjörnum alþingismönnum til hamingju með kjörið og ítreka hamingjuóskir til ríkisstjórnarinnar og góðs gengis í öllum góðum málum. Ekki mun standa á Miðflokknum að halda ríkisstjórninni við efnið. Fram undan eru áhugaverðir tímar.