156. löggjafarþing — 2. fundur,  10. feb. 2025.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[20:19]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Virðulegi forseti og kæru landsmenn. Ný ríkisstjórn, sú fyrsta í Íslandssögunni með konur í öllum oddvitasætum samstarfsflokka, leggur bjartsýn af stað á þessu vorþingi, full af baráttugleði og nestuð með góðum fyrirheitum um betra samfélag fyrir land og þjóð. Tilgangur minn og hugsjón er skýr: Ég er hér til að berjast gegn fátækt þannig að ekkert barn þurfi að líða skort vegna aðstæðna sem það ræður ekki við.

Nú höfum við, kæru landsmenn, þessa glæsilegu nýju ríkisstjórn, samhenta stjórn sem vinnur að sameiginlegu markmiði. Við erum með skýra sýn og við erum með einbeittan vilja til að breyta Íslandi til betri vegar, ekki með fögrum orðum heldur með raunverulegum aðgerðum sem munu bæta líf fólksins í landinu strax á þessu ári. Of lengi hefur fólk með skerta starfsgetu, aldraðir og tekjulágir þurft að bíða eftir réttlætinu. Þess vegna er ég stolt að segja frá því að strax í mars munum við leggja fram frumvarp sem tryggir að aldursviðbót örorkulífeyris haldist ævilangt. Þetta þýðir á mannamáli að öryrkjar munu ekki lengur missa mikilvægar tekjur við það eitt að ná 67 ára aldri eins og þeir hafa mátt búa við hingað til.

Við munum lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hér er ekki einungis um lagabreytingu að ræða heldur grundvallarbreytingu á því hvernig við önnumst og hvernig við komum fram við fatlað fólk í samfélaginu. Með lögfestingu samningsins eflum við réttarvernd fatlaðs fólks og hættum að vera eftirbátur annarra landa þegar kemur að mannréttindum.

Við munum lögfesta að örorku- og ellilífeyrir hækki í samræmi við launavísitölu, þó aldrei minna en verðlag. Þetta er grundvallarréttlætismál sem mun auka ráðstöfunartekjur þessara hópa til muna. Aldrei aftur munum við leyfa kjaragliðnun að éta upp lífeyri þeirra sem minnst hafa milli handanna þannig að bilið milli lífeyris og launa gliðni ár frá ári. Með þessu frá öryrkjar og aldraðir í fyrsta sinn ígildi þess að eiga sæti við kjaraborðið.

Eingreiðslan í desember, hin skatta- og skerðingarlausa, jólabónusinn svokallaði, hann verður tryggður til tekjulægri öryrkja og eldra fólks svo lengi sem við erum að berjast fyrir 450.000 kr. lágmarksframfærslu. Því fyrr sem okkur tekst að ná efnahagslegum stöðugleika og vöxtunum niður, því fyrr munum við sjá því göfuga markmiði náð. Þessi búbót í jólamánuðinum hefur skipt þúsundir fjölskyldna miklu máli. Það þekkir það enginn nema sá sem reynir hve erfitt það er að glíma við fátækt og geta ekki veitt sér og börnum sínum dagamun á sjálfum jólunum.

Þessi mál mun ríkisstjórnin koma með strax á þessu ári. En þetta er bara upphafið að þeim góðu verkum sem ríkisstjórnin ykkar hefur einsett sér að vinna. Á næstu árum verður gripið til frekari aðgerða til að bæta grunnframfærslu tekjulágra lífeyrisþega umfram vísitöluþróun. Sem dæmi vil ég nefna að við munum tæplega tvöfalda almennt frítekjumark ellilífeyris og ríkisstjórnin mun styrkja og styðja atvinnuþátttöku fatlaðra, taka upp sérstakt frítekjumark ellilífeyris vegna vaxtatekna og draga verulega úr skerðingum lífeyris vegna atvinnutekna. Nú á vordögum verður skipaður sérstakur hagsmunafulltrúi eldra fólks sem mun kortleggja stöðu þess, félagslegan bakgrunn og fjárhagslega afkomu. Við munum taka utan um fullorðna fólkið okkar og tryggja því þá reisn sem efri árin eiga að vera okkur öllum í okkar ríka landi. Efri árin skulu verða gæðaár. Fíknisjúkdómurinn, hann fer ekki í sumarfrí. Því er ég stolt að segja frá því að ríkisstjórnin hefur þegar samþykkt og tryggt að engum meðferðarúrræðum fyrir einstaklinga sem þurfa á meðferð að halda verður lokað í sumar.

Kæru landsmenn. Ég þekki kraftinn sem býr í samstöðu fólks. Ég þekki og veit að þegar við stöndum saman þá er okkur ekkert ómögulegt. Ég er auðmjúk og þakklát fyrir það mikla traust sem þjóðin hefur sýnt mér og Flokki fólksins, traust til að berjast fyrir þá sem eiga um sárt að binda, traust til að byggja réttlátara samfélag, traust á nýrri samhentri ríkisstjórn sem leggur nú af stað í þá fallegu vegferð að setja fólkið í fyrsta sæti. Saman munum við byggja betra Ísland, Ísland þar sem allir fá tækifæri til að lifa mannsæmandi lífi, Ísland sem við getum öll verið stolt af.

Kæra þjóð. Góðar stundir.