156. löggjafarþing — 2. fundur,  10. feb. 2025.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[20:38]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Góðir landsmenn. Síðast þegar ég stóð hér í þessari mikilvægu pontu undir stefnuræðu forsætisráðherra talaði ég um frelsið og hvernig við missum það ef við hættum að passa upp á það. En í kvöld geri ég að umtalsefni andstæðu frelsisins sem er valdið og hversu hættulegt það er ef ekki er passað upp á hvernig á því er haldið. Völdum fylgir ábyrgð, virðulegur forseti. Nýfengnu valdi sérstaklega fylgir sú ábyrgð að fara vandlega með það, bera virðingu fyrir því að það er oft skammvint, bera virðingu fyrir þessum sáttmála okkar um lýðræðið, þessu merka húsi sem við höfum þann heiður að starfa í. Vegurinn allur sem leiddi okkur að deginum í dag, okkar 1100 ára þinghald, allt er þetta stærra og mikilvægara en við öll hér í þessum sal sem komum og förum í sjávarföllum lýðræðisins. Og nei, frú forseti, ég er ekki bara að tala um þingflokksherbergið.

Núverandi ríkisstjórn hefur verið við völd í 50 daga, þing varla hafið, en því miður hefur hvert málið rekið annað sem ber þess merki að hin nýja ríkisstjórn er óþægilega markalaus þegar kemur að því að fara með hið nýfengna vald. Þessi misalvarlegu mál bera þess öll merki, frú forseti, að frasinn „á þetta, má þetta“ eigi að verða vegvísir nýrrar ríkisstjórnar. Sá gamli galdrastafur mun ekki vísa gæfuríkan veg, sama hversu samstiga þau kunna hann að ganga. Ráðherrar hafa kveinkað sér undan að hafa ekki fengið að njóta hveitibrauðsdaga nýrrar ríkisstjórnar sem þeim greinilega fannst þau eiga skilið, að það sé bara óttalegt vesen og stælar af öðrum að gera athugasemdir við hvernig þau kjósa að eyða orku sinni, athygli og forgangsröðun þessar fyrstu vikur — frekja jafnvel. Málin sem áttu vel rétt á sér að vera rædd í lýðræðislegri umræðu kölluðu á hneykslan nýrra stjórnarliða sem ýmist sögðu umfjöllunina ómerkilega, ósanngjarna eða hreinlega falsfréttir, með makalausri læklest samráðherra og stjórnarliða, án þess reyndar að geta þess í nokkru í hverju meint fals var falið. Til að bæta gráu ofan á svart er það svo bara tilviljun að eitt af fyrstu verkum ríkisstjórnarinnar er að einn af þessum meintu falsfjölmiðlum eigi að þola skerðingu á opinberum styrkjum. Tilviljun, frú forseti?

Það er dálítið eins og ný ríkisstjórn hafi ekki almennilega áttað sig á því að þau eru í alvörunni komin í ríkisstjórn. Þau hafa tekið við lyklavöldum í ráðuneytum, formennsku í nefndum. Þau eru með valdið. Þau eru valdið. Þau bera ábyrgðina, enginn annar. Þau þurfa að vera reiðubúin að vera til svara, þola umræðu og axla ábyrgð á verkum sínum og fara vel með valdið.

Mig langar að færa nýrri ríkisstjórn slæm tíðindi. Þetta voru hveitibrauðsdagarnir. Framundan er þingvetur. Stóra planið sem hæstv. forsætisráðherra var svo tíðrætt um í aðdraganda kosninga er enn í felum en við sjáum glytta í einstaka teikn. Við vitum jú að það á að ráðast í feikilega aukningu í stærstu útgjaldaflokkum hins opinbera. Við vitum að það ku eiga að greiðast með hagræðingu eða auknum tekjum eins og það er orðað. En það er ansi fyrirsjáanlegt, frú forseti, að þessar auknu tekjur verða að mestu teknar af atvinnugreinunum okkar fyrir rest. Og hvernig í ósköpunum á það að ganga upp án þess að hafa skaðleg áhrif á afkomu þeirra og þar með getu til að greiða til samfélagsins, samkeppnisstöðu, atvinnustig eða verðlag?

Frú forseti. Ég reyni almennt að vera bjartsýn en það er því miður ekki hægt að hafa nokkra trú á því að hér sé einfaldlega ekki verið að vega að undirstöðu okkar hagkerfis, meginstoðunum, peningatrénu, mjólkurkúnum. Hvað sem við viljum kalla það þá er hér verið að vega að þeim grunni sem við byggjum á velsæld okkar og velferð. Að auki eru risavaxnar kerfisbreytingar réttlættar með að þær muni greiðast með sölu á Íslandsbanka, af tekjum sem koma einu sinni. Það er ekki gáfulegt heimilisbókhald sem eykur við greiðslubyrði sína í tugi ára því að mamma vann eitt laugardagskvöldið í Lottó.

Já, frú forseti, við eigum eftir að sjá dálkana og summurnar úr þessu magnaða excel-skjali sem ríkisstjórnin er byggð á. Þegar þar að kemur mun ekki standa á Sjálfstæðisflokknum að hlýða ríkisstjórninni yfir, fara yfir hvert einasta dæmi og veita málefnalegt aðhald, sem lítur út fyrir að þurfi svo sannarlega á að halda í þágu heildarsýnar og samhengis hlutanna svo að allt venjulegt fólk í landinu beri á endanum ekki allan reikninginn. Og það er mitt einlæga ráð til ríkisstjórnarinnar að það kemur enginn með reisn út úr því að kveinka sér undan þeirri gagnrýni og því aðhaldi.

Virðulegur forseti. Ég óska nýrri ríkisstjórn farsældar í sínum störfum í þágu samfélagsins. Ég vona að hún fari vel með vald sitt. Og frú forseti, ég vona að ríkisstjórnin hafi notið hveitibrauðsdaganna. Þeir eru að baki.