Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Virðulegur forseti. Kæru landsmenn. Ný ríkisstjórn hefur tekið til starfa og sett sér metnaðarfull markmið strax á vorþingi. Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins er sameinuð um markmiðin og höfum við nú þegar hafið vinnu við fjölmörg þjóðþrifamál. Eitt af þeim málum er að taka til hendinni í húsnæðismálum.
Ólíkt því sem stjórnarandstaðan heldur fram hafa stjórnvöld gegnt mikilvægu hlutverki við gerð kjarasamninga síðustu ár og áratugi. Það hefur verið regla frekar en undantekning að ríkið komi að kjarasamningum með mikilvægar félagslegar umbætur og þá sérstaklega þegar kemur að húsnæðismálum. Má þar nefna Byggingafélag alþýðu sem var stofnað 1929 og varð síðan grunnurinn að verkamannabústöðum; með júnísamkomulaginu árið 1964 um byggingu 1.250 íbúða í Breiðholti; með lögum um almennar íbúðir sem voru hluti af kjarasamningunum árið 2015 og mynduðu grunninn að uppbyggingu Bjargs og Blævar.
Stærstu sigrarnir í húsnæðismálum hafa þannig verið í þverpólitískri sátt og með samningum við verkalýðshreyfinguna og aðila vinnumarkaðarins. Ég hef verið svo lánsamur að fá að taka þátt í uppbyggingu almenna íbúðakerfisins með stofnun Bjargs og Blævar, íbúðafélaga ASÍ og BSRB, sem hafa samanlagt byggt yfir 1.300 íbúðir, allar á kostnaðaráætlun og hver sú einasta á tímaáætlun, sem er fáheyrt í íslenskri byggingarsögu. Við þurfum að efla starfsemi slíkra félaga til mikilla muna því að skaðinn sem stjórnmálin hafa valdið á húsnæðismarkaði er gríðarlegur. Fyrst með niðurlagningu á verkamannabústaðakerfinu og síðan með algjörri markaðsvæðingu hefur húsnæðiskostnaður á Íslandi farið úr öllum takti við afkomu fólksins í landinu. Hátt í 5.000 fjölskyldur og einstaklingar eru á biðlista eftir hagkvæmu húsnæði hjá Bjargi og Blæ. Þá eru biðlistar eftir öðrum félagslegum úrræðum ekki taldir með á sama stigi. Á sama tíma standa hundruð rándýrra lúxusíbúða tómar og seljast ekki. Einnig eru þúsundir íbúða utan markaðar í útleigu til ferðamanna.
Þann 17. janúar sl. afhenti Blær sínar fyrstu íbúðir. Það sem er sérstakt við þetta verkefni er að Blær er ekki óhagnaðardrifið félag heldur fer fram með hóflegri arðsemi. Við byggðum á tíma þar sem vextir voru í hæstu hæðum en samt tókst okkur að byggja íbúðir í hæsta gæðaflokki og leigja út á miklu lægri kjörum en hinn frjálsi markaður býður upp á. Leigjendurnir sem fengu afhentar fyrstu íbúðirnar áttu það sameiginlegt að komast í langtímaskjól, losna við stanslausan kvíða yfir því að missa íbúðina, losna þurfa við að flytja á milli hverfa með börn á grunnskólaaldri og losna við andvökunætur yfir því að leiga myndi hækka langt umfram vísitölu eins og hún hafði gert öll árin á undan á hinum frjálsa markaði sem allt átti að leysa. Ávinningur af lægri húsaleigu var sambærilegur því að fá 150.000–200.000 kr. launahækkun á einu bretti.
Eitt af meginmarkmiðum með stofnun Blævar var að laða að fjárfestingu lífeyrissjóða. Ég vil nefna í því samhengi að eignir lífeyrissjóðanna í desember 2024 námu 8.231 milljarði. Ef við setjum þetta í samhengi við fjárfestingar lífeyrissjóða á Norðurlöndunum væru lífeyrissjóðirnir hérna á Íslandi með yfir 1.000 milljarða í fjárfestingu á íbúðamarkaði og myndu tryggja þannig, eins og gert er nánast alls staðar annars staðar, langtímabúsetu og framfærsluöryggi fyrir fólkið í landinu. Þessu þarf að breyta. Leigumarkaðurinn og húsnæðislánakerfið er að sliga tugþúsundir heimila og þetta er allt saman ofan á mikla dýrtíð og hækkanir á nauðsynjavörum og háa verðbólgu. Hér er um langstærsta kjara- og mannréttindamál þjóðarinnar að ræða, að hafa aðgengi að öruggu og góðu húsnæði á viðráðanlegum kjörum til lengri tíma.
En það er von því að við höfum alla burði til að leysa þennan vanda. Það er nóg til af byggingarlandi og það er nóg til af fjármagni. Það er reynsla og þekking og geta til aðgerða, aðgerða sem ný ríkisstjórn mun ekki veigra sér við að fara í, bráðaaðgerðir og langtímaaðgerðir til að búa fólkinu okkar mannsæmandi lífsskilyrði. Við höfum ekki setið auðum höndum frá kosningum því að bráðlega munum við kynna fjölþættar aðgerðir og hefja strax vinnu við að fjölga lóðum fyrir hagkvæmari íbúðir til kaups og leigu. Við stefnum á að endurvekja félagslegt eignaíbúðakerfi, stórefla hlutdeildarlánin, takmarka skammtímaleigu til ferðamanna, búa langtímafjárfestum eins og lífeyrissjóðum umhverfi og hvata til fjárfestingar. Við munum einnig skoða hvata fyrir sveitarfélög til að flýta uppbyggingu íbúða. Við ætlum að ná til allra hópa og allra landshluta, tekjulágra, unga fólksins, millitekjuhópa og eldra fólks. Við ætlum að koma þessu í verk enda erum við verkstjórn og mun sú vinna skila árangri á fyrsta starfsári ríkisstjórnarinnar.
Við í Flokki fólksins hlökkum til að leggja grunninn að þessari vegferð og við munum öll njóta góðs af árangrinum með einum eða öðrum hætti ef við tökum öll þátt í að byggja brýr og róa í sömu átt. Ég vil leyfa mér að vona að það takist, þjóð okkar og samfélagi til heilla.