ráðstafanir til að tryggja hag Íslands í tollastríði gagnvart Bandaríkjunum.
Frú forseti. Já, gott og vel. En það dugar ekki bara að ræða samskipti Íslands og Bandaríkjanna við fólk í Brussel. Það þarf líka að ræða þau við fólk í Washington. Ég undirstrika mikilvægi þess að íslensk stjórnvöld sinni samskiptum við bandarísk stjórnvöld í því ástandi sem nú er ríkjandi, að á hverri stundu geta skollið á nýir tollar. Við viljum ekki að Ísland slysist þar með. Ef við segjum það fullrætt vil ég nota tækifærið og spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort ráðherrann hafi á einhvern hátt hlutast til um í hvaða meiri hluta samstarfsflokkarnir í ríkisstjórn, Viðreisn eða Flokkur fólksins, tækju hugsanlega þátt í Reykjavík, annarhvor eða báðir. Hefur hæstv. forsætisráðherra á einhvern hátt reynt að beita sér í þeim efnum?