156. löggjafarþing — 3. fundur,  11. feb. 2025.

afstaða stjórnvalda til Reykjavíkurflugvallar.

[13:45]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ég beini fyrirspurn til hæstv. forsætisráðherra um afstöðu hennar og ríkisstjórnarinnar til Reykjavíkurflugvallar. Af hverju geri ég það? Vegna þess að í áratugi hefur Samfylkingin verið með andóf gegn Reykjavíkurflugvelli í borgarstjórn Reykjavíkur, talað ótal sinnum um að nauðsynlegt sé að flugvöllurinn fari og komið alls konar hugmyndum á framfæri sem hafa takmarkað rekstraröryggi og minnkað öryggi flugvallarins, eins og uppbyggingunni á Hlíðarenda, eins og að þráskallast við í meira en áratug. Til er samkomulag við yfirvöld ríkisins um að fjarlægja tré frá 2013, sem ég var að lesa áðan, sem hæstv. fyrrverandi ráðherra Ögmundur Jónasson skrifaði undir og hv. þm. Jón Gnarr, sem þá var borgarstjóri. Enn bólar ekkert á þessu. Það er almannavarnaástand. Forsætisráðherra, hvað ætlar dómsmálaráðherra að gera í því? Hvað ætlar heilbrigðisráðherra að gera í því að sjúkraflugið er stopp og heilbrigðismál eru upp í loft? Hvað ætlar samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að gera í stjórnsýslunni sem er með Samgöngustofu og Isavia? Þess vegna spyr ég forsætisráðherra, þetta heyrir undir fleiri ráðuneyti. Hver er stefna Samfylkingarinnar í raun? Það þurfti að sprengja meiri hlutann í Reykjavík til þess að oddviti Samfylkingarinnar í beinni útsendingu í gær fór að tala um að Reykjavíkurflugvöllur væri þar sem hann væri og væri sennilega mikilvægur og ekkert að fara. Það er alveg nýtt hljóð. Er það hin nýja stefna Samfylkingarinnar? Er það vegna þess að núverandi borgarstjóri, Einar Þorsteinsson, er byrjaður að saga niður þessi tré sem er löngu tímabært að saga? Hvort sem þau verða tugir í dag og 500 á næstu tveimur vikum sem borgarstjóri ætlar að hafa forgöngu um þá er það mikilvægt. (Forseti hringir.) En hver er stefna ríkisstjórnarinnar með Samfylkinguna í broddi fylkingar?