gögn í tengslum við bókun 35.
Virðulegi forseti. Já, ég tel mikilvægt að þingmenn hafi aðgang að öllum þeim gögnum sem tengjast þessu mikilvæga máli. Auðvitað verður forvitnilegt að sjá hér á eftir hvernig þingmenn nálgast þetta mikilvæga mál sem tengist m.a. því að við þurfum að standa við okkar alþjóðaskuldbindingar, ekki síst nú um stundir. Það verður eftirtektarvert hvernig þau mál verða reifuð hér. En að sjálfsögðu á þingið að fá þau gögn sem hv. þingmenn þurfa á að halda. Þannig hefur þetta verið í utanríkismálanefnd. En síðan 2020 hefur auðvitað ýmislegt gerst, m.a. hafa dómar fallið sem hafa undirstrikað að við þurfum að fara þessa leið sem við erum að fara hér á eftir og erum að fjalla um hér á eftir. Ég vil kynna mér nákvæmlega þessi gögn frá apríl til september. Ég sat sjálf í utanríkismálanefnd, fór yfir öll þau gögn sem þá voru lögð fram og sá sjálf þá ekkert aðfinnsluvert. Nú hefur Miðflokkurinn a.m.k. einn í utanríkismálanefnd, ég held að það sé jafnvel bara formaður flokksins, og þá eru hæg heimatökin fyrir flokkinn að kynna sér þetta. En að sjálfsögðu er það þannig að þegar málið er komið til nefndarinnar þá hafa þingmenn allan þann aðgang sem á þarf að halda til að tryggja réttláta, skynsamlega og gegnsæja málsmeðferð.
En stóra málið er að við höfum mörg tækifæri til að reifa ýmsa fleti á málinu og ég er að sjálfsögðu reiðubúin til þess að svara þeim spurningum sem upp kunna að koma.