gögn í tengslum við bókun 35.
Frú forseti. Þetta svar olli mér miklum vonbrigðum. Hér upplýsir hæstv. utanríkisráðherra um það að þingmenn sem ekki eiga sæti í utanríkismálanefnd fái ekki tækifæri til að glöggva sig á þessum þremur plöggum sem ég hef óskað eftir að við fáum til að glöggva okkur á. Þetta kemur mér leiðinlega á óvart og verður kannski að skoðast í einhverju öðru samhengi síðar. Hæstv. ráðherra fær þá tækifæri til að leiðrétta mig ef um misskilning er að ræða. Þá verð ég að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað af þeim rökum — því nú hefur hún upplýst að ráðherrann hafi kynnt sér þessi plögg á sínum tíma sem nefndarmaður í utanríkismálanefnd — hvað af þeim kjarnarökum sem sett eru fram í þessu bréfi hafa úrelst frá því að bréfin voru send til ESA á árinu 2020? Það skiptir máli fyrir okkur almenna þingmenn sem ekki erum í utanríkismálanefnd að eiga tækifæri til að glöggva okkur á þessu vegna þess að þetta eru tugir blaðsíðna. Samanlagt held ég að þessi bréf séu um 50 blaðsíður. (Forseti hringir.) Það er ekki þannig að nefndarmaður geti komið og þulið upp úr sér efni 50 blaðsíðna sem lagðar eru fram í trúnaði á nefndarfundi. Hæstv. ráðherra veit það.