aðkoma stjórnvalda að kjaradeilu kennara.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir mikilvæga spurningu. Það er verið að deila um jöfnun kjara sem komst fyrst í umræðuna 2016. Ástæðan fyrir því að kennarar hafa misst trú er sú að þau hafa staðið í þessari stöðu frá árinu 2016. Fyrri ríkisstjórn sat hér frá árinu 2017. Núverandi ríkisstjórn hefur verið hér í rúman mánuð, tæpa tvo mánuði, þannig að ferli sem hefði getað átt sér stað frá árinu 2016 eða 2017, á sjö til átta ára tímabili fyrri ríkisstjórnar, á núna að gerast á tæpum tveimur mánuðum. Ég skil þess vegna að traustið sé laskað. Ég tek það hins vegar líka til mín sem forsætisráðherra vegna þess að þegar traust er orðið laskað gagnvart stjórnvöldum þá endurnýjast það ekki af sjálfu sér þó að breytt sé um fólk í brúnni og það hefur tekið langan tíma og mörg samtöl með almennum hætti við kennaraforystuna óháð þessari kjaradeilu.
Óháð þessari kjaradeilu vil ég fullvissa kennara um til að mynda að ríkisstjórnin standi með virðismatinu, standi með virðismati starfa og hafi trú á því ferli sem felst í því að setja af stað ákveðna vegferð sem gerir að verkum að hægt sé að meta ákveðið andlegt álag, ákveðið álag sem birtist í störfum til að mynda hjá stéttum þar sem er einkeypi — þú ert bara að semja við einn atvinnurekanda — og að það sé trú á því ferli og stjórnvöld muni standa sig í því. Þannig að traustið snýr ekki bara að fyrri ríkisstjórn, það snýr líka að þessari sem hér situr. — Ég tek seinni spurninguna fyrir í næsta andsvari.