aðkoma stjórnvalda að kjaradeilu kennara.
Forseti. Þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur verið að skoða og skoða alvarlega, af því að hún tekur stöðuna alvarlega, varða almennar aðgerðir. Í fyrsta lagi að flýta virðismati. Það snýst um að þeir aðilar sem eru að vinna virðismatið hafi í raun fjármagn og svigrúm til að vinna þá vinnu hraðar. Við höfum gefið vilyrði um að það sé hægt að vinna þá vinnu hraðar og vonandi skila virðismati fyrr en áður var áætlað, kannski fyrir lok næsta árs. Þetta er ákveðin skuldbinding sem þarf að koma fram hjá ríkisstjórninni. Síðan höfum við líka talað fyrir því að flýta ákveðnum aðgerðum í menntamálum. Þetta eru þær almennu aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur rætt um við kennara. Þetta hefur komið víða fram í fjölmiðlum. Það kom fram strax daginn eftir að við funduðum með kennaraforystunni um þessar almennu aðgerðir að þetta fólst í okkar aðgerðum. Hins vegar eru það í lok dags sveitarfélögin sem semja um prósentur, um almenn kaup og kjör við leik- og grunnskólakennara en ríkisstjórnin er þarna til að liðka fyrir og getur liðkað fyrir með því að flýta virðismati og með því að flýta almennum aðgerðum í menntamálum.