156. löggjafarþing — 3. fundur,  11. feb. 2025.

viðbrögð við ræðu forsætisráðherra.

[14:12]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Mér finnst nú æðiundarlegt að þingmenn stjórnarandstöðunnar skuli koma hér upp og gera athugasemd við fundarstjórn forseta, eru beinlínis að kvarta og kveina undan því að hafa ekki hlustað á ræðu forsætisráðherra sem var haldin hér mjög skýrt og greinilega í gærkvöldi. Ég bara spyr mig þegar menn ganga svo langt, meira að segja fyrrverandi hæstv. ráðherrar, að tala um að þeir hafi verið leiddir í gildru bara eins og saklaus lömb til slátrunar, ég bara á ekki orð yfir þetta. Auðvitað er sárt fyrir fyrrverandi ráðherra að horfast í augu við þá staðreynd að hvað varðar stórvirkjanir og gangagerð þá var ekki mikið að gerast í þeirri ríkisstjórn sem lét af störfum, sem betur fer, á síðasta ári og hefur því miður skilað innviðum í nánast, vil ég segja — það er virkileg þörf á að taka hér á innviðauppbyggingu. Sérstaklega þegar það var ríkisstjórn sem var sérstaklega mynduð um það (Forseti hringir.) að byggja upp innviði. Það er frekar aumt að hv. þingmaður skuli koma hér fram (Forseti hringir.) og bera svona aumlegan málflutning á borð fyrir þingheim.