156. löggjafarþing — 3. fundur,  11. feb. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:42]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra þarf ekki að hvetja okkur í Framsókn til að vera framsýn. Það er enginn hörgull þar á. Hins vegar vil ég hvetja hæstv. ráðherra til að svara spurningunum og koma sér út úr því að vera í stjórnarandstöðu og halda að ég sé í stjórn. Ég er kominn í stjórnarandstöðu, eins og ég vona að þingheimur hafi upplifað síðasta sólarhringinn.

Ég spurði einfaldlega tveggja spurninga: Er það mat utanríkisráðherra og nýrrar ríkisstjórnar að bókun 35 sé mikilvægasta málið og þess vegna sé það fyrst á dagskrá? Og í öðru lagi: Er líklegt að öll ríkisstjórnin og allir þingmenn séu jafn samhentir og yfirlýsingar komu fram um í stefnuræðunni í gær? Þessu spyr ég að í ljósi þess að umræða um bókun 35 hefur farið fram hér áður og ýmsir hafa verið með talsvert andstæðar skoðanir við hæstv. utanríkisráðherra núna, og getur vel verið að ég verði meira og minna sammála hæstv. utanríkisráðherra. En ég er að spyrja um ríkisstjórnina.