156. löggjafarþing — 3. fundur,  11. feb. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:50]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er aðeins hugsi eftir þessa fyrirspurn og vangaveltur hjá hv. þingmanni. Ég hélt að ástæðurnar hefðu verið aðrar en þær að Sjálfstæðisflokkurinn sem slíkur hefði verið fyrirstaðan í því að afgreiða málið en ég velti fyrir mér núna hvort það séu einfaldlega skiptar skoðanir innan Sjálfstæðisflokksins sem leiddu til þess að það var ekki hægt að afgreiða bókunina á síðasta kjörtímabili. Mér finnst það sérstakt ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að fara að taka þann pól í hæðina eftir mjög skýran hæstaréttardóm, eftir mjög mikla vinnu fræðimanna, ítarleg gögn þeirra sem við höfum hlustað á í gegnum tíðina, eins og Þorgeir Örlygsson, fyrrum dómara við EFTA-dómstólinn og hæstaréttardómara, prófessor í lögum við Háskóla Íslands og síðan Benedikt Bogason, núverandi forseta Hæstaréttar, að taka ekki mark á því. Í því felst mín ábyrgð og ríkisstjórnarinnar að leggja málið fram og að sjálfsögðu munum við veita þinginu (Forseti hringir.) svigrúm og tíma. En við gerum okkur líka grein fyrir ábyrgð okkar og skyldum og ég vona að allur þingheimur geri það líka.