Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Við erum hér að ræða bókun 35, sem er vissulega snúið mál fyrir okkur í Flokki fólksins. En efnislega, eftir vandlega yfirferð í aðdraganda þess að ríkisstjórnin var mynduð, er það einfaldara fyrir okkur að taka afstöðu heldur en áður. Fyrir það fyrsta er það nú bara þannig að Flokkur fólksins hefur verið á móti bókuninni, enda hafði hún það yfirbragð að það væri greinilega verið að geirnegla, fannst okkur fyrst, Ísland inn í Evrópusamstarfið og inn í alþjóðavæðinguna. Við í Flokki fólksins erum andvíg því að ganga inn í Evrópusambandið og viljum halda í þjóðleg gildi. Við viljum standa vörð um íslenskuna. Við viljum standa vörð um íslenskan landbúnað. Við viljum standa vörð um íslenskan sjávarútveg, sjávarþorpin, Grímsey, og viljum líka standa vörð um það að almenningur eigi jafnari aðgang að sjávarauðlindinni heldur en verið hefur í framkvæmd. Við erum á því líka að almenningur eigi að njóta afraksturs auðlindanna í meira mæli heldur en verið hefur. En því miður hefur stjórnarandstaðan ekki verið okkur samstiga í því og hefur jafnvel unnið að því leynt og ljóst að gera sjávarauðlindina að einkaeign nokkurra auðmanna og gera sjávarþorpin, Grímsey og fleiri þorp, nánast að auðn í þágu kerfis sem hefur ekki þjónað upphaflegum markmiðum. Við höfum þess vegna verið með ákveðna fyrirvara gagnvart svona kerfishugsanagangi og teljum að það sé alltaf rétt að staldra við.
En aftur að bókun 35. Við gildistöku EES-samningsins var gert ráð fyrir því að bókun 35 væri innleidd með tryggilegum hætti en hún felur í sér, eins og hæstv. utanríkisráðherra hefur farið hér mjög vel og greinilega í gegnum, að ákvæði samningsins gangi framar almennum lögum í þeim þáttum vel að merkja sem samningurinn nær til, ekki öðrum þáttum, þannig að við erum ekki hér að yfirfæra eða taka á okkur frekari skuldbindingar heldur en við gerðum fyrir nokkrum áratugum síðan þegar þessi samningur var lögfestur. Í seinni tíð, eins og hæstv. ráðherra kom inn á, m.a. í dómi Fæðingarorlofssjóðs, hefur komið fram sú túlkun að bókunin hafi ekki verið fest nægilega tryggilega í íslenskan rétt og því erum við hér samankomin til þess að koma þessari bókun í gegn eins og, gott ef það var ekki í 3. gr. samningsins, gert var ráð fyrir að við hefðum gert í upphafi. Við erum því vel að merkja ekki að taka upp eitthvað nýtt, við erum ekki að axla nýja ábyrgð í þessu heldur erum við að gera eitthvað sem við undirgengumst fyrir 30 árum síðan.
Hvað felur þetta í sér? Jú, við fengum aðgang að bestu og ríkustu mörkuðum heims. Þeir sem eru andsnúnir þessari bókun verða þá að gera það upp við sig og segja frá því hvað þeir vilja í staðinn. Vilja þeir grafa undan samningnum? Hvað á þá að verða um íslenskar vörur? Hvert á þá að flytja þær? Við verðum að tala af ákveðinni hreinskilni um að það er ekki hægt að vera á móti samningnum án þess að segja hvað eigi að koma í staðinn.
Það er rétt að geta þess að við ríkisstjórnarmyndunina, eins og ég nefndi í upphafi, var farið rækilega í gegnum þetta. Við höfðum vissulega sagt aðra hluti hér áður en það var farið í þessa umræðu. En ég vil segja það við vini mína í Miðflokknum sem við eigum vissulega ýmsa góða strengi með og sameiginleg mál, flokkar okkar ganga að sumu leyti í takt, að ég bara hvet þá í einlægni til þess að nota núna nefndarstarfið til þess að fara vel yfir málið. Þá er ég nokkuð viss um það, ég tel það bara næsta víst, að þeir muni greiða atkvæði með þessum samningi þegar upp er staðið. Ég vil enda mína ræðu á því að segja: Við erum ekki að undirgangast frekari skuldbindingar. Við erum að tryggja samninginn um Evrópska efnahagssvæðið sem skiptir verulega miklu máli fyrir land og þjóð.