156. löggjafarþing — 3. fundur,  11. feb. 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[15:43]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ekki til í að svara af eða á — nei, ég get kannski alveg skilið það, en mér finnst einhvern veginn eins og ég geti lesið það úr orðum formanns Framsóknarflokksins í dag og hv. þingmanns hér að það sé meiri vilji til að samþykkja þetta mál núna heldur en maður hefur heyrt. Ég fagna því að sjálfsögðu af því að við erum búin að upplifa það og búið er að rekja það í gegnum þennan fæðingarorlofsdóm að það eru bara alls konar réttarbætur sem við erum að fá í gegnum innleiðingar á tilskipunum frá Evrópusambandinu. Ég fagna því að sjálfsögðu að Framsóknarflokkurinn sé að nálgast þau sjónarmið að okkur beri að standa við það, enda er það í sjálfu sér bara fáránlegt, virðulegi forseti, að ætla sér að skrifa undir samninga og ætla svo bara að gera einhverjar sérreglur þegar manni dettur það í hug. Annaðhvort gerum við samninga og stöndum við þá eða við gerum þá ekki.