Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Við erum að ræða hér frumvarp til laga um innleiðingu á svokallaðri bókun 35 sem hefur verið margumtalað hér á þingi á síðasta kjörtímabili en í þetta skipti í fyrsta sinn í minni þingveru. Það sem ég myndi vilja segja er að nú hafa mjög margir, þar á meðal hv. þingmenn og þar á meðal nokkrir hv. þingmenn Flokks fólksins sem núna er í stjórn, talið að þessi bókun brjóti í bága við stjórnarskrá.
2. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi og forseti Íslands fara saman með löggjafarvaldið.“
Þetta er 2. gr. stjórnarskrárinnar, að Alþingi fari með löggjafarvaldið. Bókun 35, eins og hún er í þessu frumvarpi og er leidd í lög samkvæmt frumvarpinu, segir svo, með leyfi forseta:
„Ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar …“
Þetta segir að ef íslensk lög sem sett eru hér á þingi ganga í berhögg við einhverja reglugerð eða innleiðingu frá Evrópusambandinu eða EES-samningnum, sem er líka innleidd hér á landi með ákveðnum hætti annaðhvort áður eða eftir að bókunin verður að lögum hér, þá gangi reglugerðin eða lögin frá Evrópu framar. Látum það vera að þetta lagaákvæði sé eldra en þessi innleiðing á bókuninni, þá gengur það hugsanlega framar. En ef Alþingi dettur í hug á næsta þingi að setja í lög einhvern texta, einhverja reglu og við erum í góðri trú hér í þessum þingsal að setja þessi lög og þau fara svo út í samfélagið og ganga þar í gildi og menn skyldu halda það og hv. þingmenn skyldu halda það en nei, þá finna menn eitthvert ákvæði sem enginn sá fyrir frá EES sem búið er að innleiða á einhvern hátt og það gengur í berhögg við þessa íslensku lagareglu sem við erum nýbúin að setja, kannski á næsta þingi. Hvort skyldi nú ganga framar? Það sem við héldum sem löggjafarvald að við værum að mæla fyrir um? Nei, nei, löggjafarvaldið er með þessu móti hrifsað frá okkur þingmönnum. Það er hrifsað frá okkur þingmönnum.
Flokkur fólksins getur hrist höfuðið en Flokkur fólksins barðist á móti bókun 35. Núna er Flokkur fólksins búinn að fara í gegnum framleiðslulínu Viðreisnar og Samfylkingar og út kemur bara glænýtt fólk. Þau hafa lýst því yfir hér, hv. þingmenn, hæstv. ráðherra Eyjólfur Ármannsson og hæstv. ráðherra félags- og húsnæðismála, formaður flokksins, að þau séu búin að fara í einhvers konar kennslustund hjá þessum tveimur samstarfsflokkum og nú skilji þau málið bara miklu betur, nú líti þetta allt öðruvísi út. Hv. þm. Sigurjón Þórðarson kom hér áðan og sagði eitthvað svipað. Ég hef það nú ekki orðrétt eftir honum en það var eitthvað svipað, að nú áttaði hann sig á þessu og þetta væri bara allt í lagi. Framleiðslulína Viðreisnar og Samfylkingar svínvirkar greinilega í þessu tilviki. Þau eru búin að læra þetta. Þetta er allt í lagi. Það er allt í lagi að innleiða þetta. Við skulum bara varpa þessu frá okkur eins og svo mörgu öðru.
Ég hef stórar efasemdir um að þessi innleiðing standist stjórnarskrána og margir lögfræðingar eru mér sammála. Þess vegna vil ég hafa allan fyrirvara á því þegar þetta mál heldur áfram fyrir þinginu og verður skoðað ofan í kjölinn hvaða álit menn hafa á þessu eftir það. Það er auðvitað grundvallarkrafa að við þingmenn sem ekki erum í utanríkismálanefnd fáum að sjá, til að geta tekið upplýsta ákvörðun, þau bréf sem fyrrverandi hæstv. utanríkisráðherra sendi út til að halda uppi vörnum fyrir Íslands hönd fyrir nokkrum árum síðan, að við fáum þau bréf til að glöggva okkur á því hvaða vörnum við héldum þar uppi og hver viðbrögðin við því voru, til þess að við getum tekið upplýsta ákvörðun þegar þetta kemur til frekari umræðu á þinginu. Það er lágmarkskrafa að við hér, þingmenn íslensku þjóðarinnar, sem hér erum kjörnir, nýkomnir til þings, fáum að sjá þetta.
Fleira vekur athygli varðandi framgang þessa máls. Ég vil nefna, eins og fleiri hv. þingmenn hafa gert, að þetta er fyrsta málið sem kemur hér inn í þingsal. Af hverju? Gat samstarfsflokkurinn, Flokkur fólksins, ekki fengið svona smá kurteisisandrúm til þess að láta þetta bíða örlítið, kannski daginn eða svo? Nei, mál númer eitt, mál sem þau voru gegn, fyrir nokkrum vikum síðan voru þau gegn þessu máli eins og svo mörgum öðrum málum. Var hægt að veita þetta svigrúm? Nei, fyrsta mál: bókun 35. Hvað segir þetta? Smá kurteisi, bíðum með þetta kannski einn eða tvo daga? Nei, fyrsta mál. Það slær taktinn. Það slær taktinn í þessari ríkisstjórn.
Herra forseti. Ég ætla að láta þetta nægja í bili en mun að sjálfsögðu fylgjast vel með málinu.