Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Það er tilhlýðilegt að óska hæstv. utanríkisráðherra til hamingju með fyrsta málið sitt hér á þingi og hæstv. ríkisstjórn allri. Ég er hlynnt þessu máli, hef tekið afstöðu til þess áður og reyndar þegar maður les það er líka gaman að velta fyrir sér hver hafi eiginlega skrifað þetta mál sem hæstv. ríkisstjórn er að leggja fram sem fyrsta mál sitt. En að sjálfsögðu þarf að ræða það vel. Hér hefur auðvitað alls konar hlutum verið kastað fram í gegnum tíðina um þetta mikilvæga mál. Ég ætla að fá að segja það, eins og ég hef stundum sagt í þessum ræðustól, að mér finnst mikilvægt að þingheimur ræði reglulega um utanríkismál og alþjóðamál. Þess vegna finnst mér það sérstakt fagnaðarefni að þetta sé fyrsta mál ríkisstjórnarinnar og það vonandi sýnir að ríkisstjórnin ætli að hafa alþjóðamálin á dagskrá. Ég get reyndar alveg viðurkennt það að mér finnst það samt mjög sérstakt að ríkisstjórnin velji þetta sem fyrsta mál. En hvað um það.
Ég er á þeirri skoðun að EES-samningurinn sé bara einn af okkar allra mikilvægustu samningum og sé algjört lifibrauð fyrir íslenskt atvinnulíf og íslenskt samfélag. En við erum líka fullvalda þjóð og við eigum ekki að taka við einhverju reglugerðafæribandi frá Brussel. Þess vegna langar mig að segja það hér, herra forseti, að ég held að það sé mikilvægt fyrir okkur öll, hvort sem við erum í stjórn eða stjórnarandstöðu, að hafa augun ávallt opin fyrir öllum málum því mér hefur þótt í gegnum tíðina að þingmenn hafi allt of oft afsakað sig með því að þetta væri bara eitthvert innleiðingarmál og þeir þyrftu þar af leiðandi ekki að taka málefnalega afstöðu til málsins. Svo má aldrei vera. Það er engin afsökun fyrir okkur hér. Þingheimur þarf alltaf að setja sig vel inn í mál og taka til þeirra afstöðu, hvort sem það eru lög sem verða til í ráðuneytum eða hjá einhverjum starfshópum ríkisstjórnarinnar eða koma sem innleiðing með EES-samningnum.
Virðulegur forseti. Þótt ég sé reynd í því að vera í þessum sal og taka þátt í alls konar umræðu, þá er ég samt sem áður hér í fyrsta skipti í stjórnarandstöðu. Ég minnist þess hér sem stjórnarliði að stjórnarandstaðan var mjög dugleg að kalla eftir ráðherrum í salinn. Ég treysti því nú auðvitað að hæstv. utanríkisráðherra sé hér í hliðarherbergjum að hlusta á mig, en það var mjög algengt á síðasta kjörtímabili að það var kallað eftir fleiri ráðherrum sem höfðu kannski tjáð sig um mál eða haft einhverja skoðun eða komu mögulega að málum með einhverjum hætti. Þess vegna, virðulegur forseti, furða ég mig mjög á því að hér er ráðherrabekkurinn tómur, sérstaklega þar sem við erum nú alla vega með tvo ráðherra í þessari ríkisstjórn sem hafa áður lýst því yfir að þetta mál hér, sem er fyrsta mál ríkisstjórnarinnar, sé bara reyndar í ósamræmi við stjórnarskrá og þingheimur ætti alls ekki að samþykkja. Ég segi bara: Batnandi mönnum er best að lifa og að sjálfsögðu á fólk að geta skipt um skoðun. Ég ætla ekki að vera á móti því. En ég ætla bara að leyfa mér að gefa Flokki fólksins svona smá pólitískt ráð, þar sem stór orð hafa fallið um nákvæmlega þetta mál, að þá væri kannski tilhlýðilegt að viðkomandi ráðherrar myndu nýta þetta púlt, málstofu Alþingis, til að útskýra það hvernig þau komust að breyttri niðurstöðu í málinu. Ég er bara að segja að ég held að það muni líta illa út í sögubókunum fyrir þessa hæstv. ráðherra sem hafa áður tjáð sig um þetta mál með stórum orðum að svo heyrist ekkert hérna í þingræðum fyrr en viðkomandi aðilar ætla bara að ýta á græna takkann. Ég gef þetta sem svona ókeypis pólitískt ráð til Flokks fólksins og vænti þess að þau taki því vel og innan tíðar muni fleiri ráðherrar birtast á ráðherrabekk til að taka þátt í þessari miklu og mikilvægu umræðu.
Að því sögðu þá sagði ég það strax áðan að ég óska hæstv. utanríkisráðherra til hamingju með þetta mál. Ég er hlynnt því, enda hefur minn flokkur og ráðherra úr mínum flokki lagt þetta mál fram. Ég viðurkenni samt að það er flókið og þess vegna fagna ég því að það sé umræða hér í dag og ég fagna líka mjög því að fólk komi hér upp og tjái andstæð sjónarmið því þannig á þingsalurinn að vera. Það er auðvitað líka rosalega mikilvægt fyrir hv. utanríkismálanefnd, og horfi ég nú hér á nýjan formann nefndarinnar, að fara vel yfir málið. Ég held að það sé mjög mikilvægt að öllum sé ljóst nákvæmlega hvað þetta þýðir. Ég hvet til þess að nefndin vandi sig mjög í störfunum og ég hlakka til að heyra frekari ræður um þetta mikilvæga mál og ekki síst frá því fólki sem hér hefur skipt um skoðun.