breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Með tillögunni, sem lögð er fram samkvæmt ákvæðum laga um Stjórnarráð Íslands, er leitað eftir stuðningi Alþingis við fyrirhugaða breytingu á heiti og fjölda ráðuneyta í stjórnarráðinu.
Fyrirhugaðar breytingar á Stjórnarráði Íslands fela í sér að í stað félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis, matvælaráðuneytis og menningar- og viðskiptaráðuneytis komi atvinnuvegaráðuneyti, félags- og húsnæðismálaráðuneyti og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti. Með breytingunni fækkar ráðuneytum úr tólf í ellefu.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins kemur fram skýr vilji til að hagræða í ríkisrekstri, m.a. með því að einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir. Í þessu efni er stigið fram af festu í upphafi kjörtímabils og er markmið fyrirhugaðra breytinga á skipulagi Stjórnarráðsins að hagræða í rekstri þess en styrkja um leið skipulag og verkaskiptingu innan Stjórnarráðsins í samræmi við þá meginreglu stjórnarráðslaganna að eðlislík málefni skuli heyra undir eitt og sama ráðuneytið. Áætlað er að sú hagræðingaraðgerð sem ráðist verður í með niðurlagningu ráðuneytis skili u.þ.b. 350 millj. kr. hagræðingu á árinu 2026 og að hún komi að miklu leyti fram á þessu ári. Að auki má reikna með því að samlegðaráhrif þess að sameina málaflokka í færri ráðuneyti stuðli að betri nýtingu fjármuna.
Markmið áformaðra breytinga er þó ekki eingöngu fjárhagslegur sparnaður til skamms tíma heldur fyrst og fremst að gera Stjórnarráð Íslands öflugra og skilvirkara til lengri tíma með því að skerpa betur á og skýra verkaskiptingu á milli ráðuneyta. Þannig vill ríkisstjórnin tryggja öfluga og samhenta nálgun í störfum Stjórnarráðsins um stefnuáform stjórnarinnar, einkum varðandi málefni atvinnulífs, húsnæðismál, auðlindamál og efnahagsmál með heildarhagsmuni samfélagsins að leiðarljósi.
Með breytingunni verða möguleikar á að samhæfa stefnumótun í málaflokkum sem áður voru í mismunandi ráðuneytum og einnig skapast ný tækifæri varðandi samlegð verkefna sem ekki voru augljós áður. Þá er almennt talið að stærri og öflugri ráðuneyti leiði til betri og skilvirkari samskipta við undirstofnanir ráðuneyta, aukins fjárhagslegs og faglegs eftirlits með þeim og að endingu betri þjónustu við almenning. Þannig geta fyrirhugaðar breytingar bætt rekstur ríkisins og tryggt að fjármunir séu nýttir á sem skilvirkastan hátt. Þar er líka mestan fjárhagslegan ávinning að hafa til framtíðar.
Virðulegi forseti. Stjórnarráðslögin sem samþykkt voru árið 2011 kváðu á um breytingar sem miðuðu fyrst og fremst að því að bæta störf og starfshætti ráðherra, ríkisstjórnar og stjórnsýslu Stjórnarráðsins almennt. Eitt helsta markmið laganna var að efla samhæfingu starfa á milli ráðherra og er m.a. kveðið á um skyldur ráðherra til að leitast við að samhæfa stefnu sína og aðgerðir þegar málefni og málefnasvið skarast. Með lögunum var skipulags- og verkskiptingarvald forsætisráðherra einnig áréttað í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar. Var þá fallið frá þeirri löggjafarframkvæmd að telja upp ráðherra og ráðuneyti með tæmandi hætti í lögunum og þess í stað skal endanlegt ákvörðunarvald um það hvaða ráðuneyti skyldu starfrækt hvíla hjá framkvæmdarvaldinu, þ.e. forsætisráðherra á hverjum tíma með atbeina forseta Íslands. Það er á þessum grunni sem ég mæli fyrir þessari þingsályktunartillögu, enda er það óskorað hlutverk og ábyrgð forsætisráðherra að gæta þess að grunnskipulag Stjórnarráðsins sé þannig að sem bestur árangur náist við framkvæmd lögbundinna verkefna sem og við stefnumótun og framkvæmd áhersluverkefna ríkisstjórnar hverju sinni.
Á grunni stjórnarráðslaganna hefur á umliðnum árum verið unnið að margvíslegum umbótum, m.a. til að auka sveigjanleika stjórnkerfisins með aukinni samvinnu og samstarfi þvert á ráðuneyti til að tryggja að þekking og mannauður sé nýttur til fulls. Lögð hefur verið áhersla á að bæta umgjörð stefnumótunar og auka sveigjanleika til að innleiða megi breytingar hratt og vel, með sem minnstri röskun á starfsemi stjórnsýslunnar. Þá hefur verið unnið að því að auka samhæfingu og samvinnu stjórnvalda sem fara með skylduverkefni og getu stjórnsýslunnar til viðbragða og stefnumótunar til að mæta örum samfélagsbreytingum og áskorunum framtíðarinnar líkt og aukinni alþjóðavæðingu, breytingum á sviði alþjóðastjórnmála, tæknibreytingum, dvínandi trausti almennings gagnvart stjórnvöldum og auknum og eðlilegum kröfum hagsmunaaðila og almennings um aðkomu að stefnumótun stjórnvalda.
Í þessu samhengi er mikilvægt að ráðuneytin hafi góða yfirsýn yfir stefnumótun og að málaflokkar séu ekki of dreifðir milli of margra ráðuneyta. Núverandi ríkisstjórn gengur samhent til verka sinna og mun við innleiðingu stjórnarstefnunnar vinna að því að draga úr ýmsum takmarkandi áhrifum smæðar íslenskrar stjórnsýslu með því að efla ráðuneytin og styrkja samhæfingu starfa á milli ráðherra og ráðuneytanna enn frekar. Með því að fækka ráðuneytum um eitt gefst tækifæri til að efla önnur ráðuneyti.
Virðulegur forseti. Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir ýmsum áskorunum. Á sama tíma og við tökumst á við erfiðleika í efnahagsmálum eru viðsjárverðir tímar á alþjóðavísu og þeim fylgja úrlausnarefni fyrir stjórnvöld hér á landi sem og annars staðar. Brýnt er að takast á við fjölmörg verkefni sem snúa að velferðarkerfinu okkar og uppbyggingu innviða í landinu. Við viljum móta auðlindastefnu um sjálfbæra nýtingu og réttlát auðlindagjöld og almennt skapa skilyrði sem stuðla að aukinni verðmætasköpun í atvinnulífinu. Við munum kynna aðgerðir sem leiða til betra jafnvægis á húsnæðismarkaði fyrir fólkið í landinu og við ætlum að ráðast í þjóðarátak í umönnun eldra fólks og styrkja stefnumótun sem styður við heilbrigða öldrun í samfélagi þar sem eldra fólki fjölgar hratt.
Ofangreind verkefni eru dæmi um fjöldamörg verkefni ríkisstjórnarinnar og er fyrirhuguðum breytingum á ráðuneytisskipan Stjórnarráðs Íslands ætlað að tryggja að stjórnsýslan sé vel í stakk búin til að fylgja eftir þessum megináherslum sem fram koma í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar á kjörtímabilinu. Þannig endurspegla breytt heiti ráðuneytanna áherslur ríkisstjórnarinnar, m.a. um aukna verðmætasköpun í atvinnulífi og aðgerðir sem stuðla eiga að jafnvægi á húsnæðismarkaði. Breytingarnar hafa verið í undirbúningi frá myndun ríkisstjórnarinnar og einnig hefur átt sér stað undirbúningur af hálfu forsætisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis í samstarfi við þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins og Fjársýslu ríkisins með hliðsjón af skýrslu Ríkisendurskoðunar um þá uppstokkun ráðuneyta sem gerð var eftir alþingiskosningarnar 2021.
Virðulegi forseti. Þótt sjálf tillagan sem hér er leitað eftir stuðningi við varði einungis fjölda og heiti ráðuneyta þá er í greinargerð rakið hvaða aðrar tilfærslur á verkefnum ráðuneyta eru áformaðar. Það ber að skoða þá umfjöllun sem upplýsingagjöf til þingsins til að heildarsamhengi breytinga á Stjórnarráðinu í upphafi þessa kjörtímabils liggi sem ljósast fyrir. Hér vil ég því eingöngu nefna þær breytingar sem eru mestar að umfangi og vona að eiga á þessum þingfundi og við þinglega meðferð tillögunnar góðar umræður um breytingarnar í heild sinni.
Matvælaráðuneytið fær nýtt heiti og verður atvinnuvegaráðuneyti. Það mun ná til allra greina hins almenna atvinnulífs. Heiti þess undirstrikar að áherslur þess eru víðtækari en svo að þær nái fyrst og fremst til matvælaframleiðslu þó að stjórnarmálefni landbúnaðar og sjávarútvegs muni áfram heyra undir ráðuneytið. Meðal stjórnarmálefna sem flytjast í atvinnuvegaráðuneytið eru viðskipti, neytendamál og ferðamál úr núverandi menningar- og viðskiptaráðuneyti. Þá færist stjórnarmálefnið iðnaður frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti. Með þessu er ráðuneytið eflt til muna og aðkoma stjórnvalda að stærstu atvinnuvegum þjóðarinnar verður á einum stað. Þannig mun nást fram mikil samlegð þvert á atvinnugreinar, t.d. varðandi samkeppnissjóði og stoðkerfi atvinnulífsins, bætta þjónustu við fyrirtæki og neytendur og ekki síst til að efla samkeppnishæfni atvinnugreina á landsvísu.
Núverandi félags- og vinnumarkaðsráðuneyti fær einnig nýtt heiti og verður félags- og húsnæðismálaráðuneyti. Málaflokkarnir húsnæðis- og mannvirkjamál og skipulagsmál flytjast til ráðuneytisins. Er þessi breyting í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í húsnæðismálum sem eiga að auka húsnæðisöryggi almennings og stuðla að kerfisbreytingum til lengri tíma. Auk þeirra breytinga verður tilfærsla á málaflokkum sem varða öldrunarþjónustu frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og húsnæðismálaráðuneytis. Heilbrigðisþjónusta við hruma og veika aldraða, þ.e. þjónusta í hjúkrunarrýmum, sérhæfðri dagdvöl og heimahjúkrun verður áfram hjá heilbrigðisráðuneyti en stjórnarmálefni sem snúa að opinni öldrunarþjónustu, þar með talið félags- og virkniþjónustu, búsetuúrræðum og uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustuíbúða fyrir aldraða verða í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Sú skipting er í samræmi við það viðhorf að öldrun sé ekki sjúkdómur sem kalli á heilbrigðisþjónustu heldur almenna öldrunar- og stuðningsþjónustu. Lýðfræðilegar breytingar á aldurssamsetningu þjóðarinnar, þar sem eldra fólki fjölgar hratt en jafnt og þétt dregur úr fæðingartíðni, kalla á áherslur sem endurspegla vilja löggjafans til að styðja við heilbrigða öldrun. Þessari þróun fylgja bæði tækifæri og áskoranir og mikilvægt er að stjórnvöld bregðist við með bættri stefnumótun í málefnum aldraðra. Mörg stjórnarmálefni fyrirhugaðs félags- og húsnæðismálaráðuneytis varða málefni eldra fólks og aldraðra, svo sem lífeyristryggingar almannatrygginga, félagslegur viðbótarstuðningur við aldraða og félagsleg þjónusta, auk þess sem uppbygging hjúkrunarheimila á augljósa samleið með skipulags-, húsnæðis- og mannvirkjamálum. Er það mat ríkisstjórnarinnar að með þessum breytingum náist betri yfirsýn yfir málaflokka sem varða hagsmuni eldra fólks á einn eða annan hátt, sem auðveldi stjórnvöldum að endurskoða og bæta stefnumótun á grunni víðtæks samráðs við hagaðila og heildstæðra og ítarlegra greininga innan stjórnsýslunnar. Meginmarkmið þeirrar vinnu verður að styrkja umgjörð stjórnsýslunnar í málefnum aldraðra í því skyni að auka lífsgæði þessa stækkandi þjóðfélagshóps og mæta betur margbreytilegum þörfum hans.
Þá fær háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti nýtt heiti og verður að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti. Ráðuneytið tekur við málaflokkunum fjölmiðlar, safnamál, listir og menning og íslenska sem nú heyra undir menningar- og viðskiptaráðuneyti. Er breytingin liður í að skapa skýrari verkaskiptingu og betri samþættingu málaflokka í ráðuneyti sem fer með menningu, nýsköpun og háskólastarf, en augljós tengsl eru á milli skapandi greina og vísinda og þekkingarsamfélagsins. Öflugt samstarf á milli þessara greina atvinnulífsins og þeirra grunnrannsókna sem fram fara í háskólum landsins er einnig forsenda þess að hægt sé að takast á við flóknar áskoranir og stuðla að nýsköpun og hagvexti.
Hæstv. forseti. Að lokum vil ég nefna að stefnt er að því að forsetaúrskurður um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti, með þeim breytingum sem gerð eru skil í tillögunni, komi til framkvæmda 1. mars næstkomandi. Á sama tíma verður einnig gefinn út nýr forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í samræmi við þau áform sem ég hef hér farið yfir.
Virðulegi forseti. Ég legg til að þessari tillögu verði vísað til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og síðari umræðu að aflokinni þessari.