breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir þessa góðu og gildu spurningu. Nú þekki ég ekki á hvaða grunni þetta mat sem birtist í svari við Morgunblaðið var byggt en það hefur auðvitað farið fram ítarleg greiningarvinna af hálfu forsætisráðuneytisins við sameininguna, vænta sameiningu, og þar kemur fram að samtals sé áætluð hagræðing vegna niðurlagningar menningar- og viðskiptaráðuneytisins á ársgrundvelli 240 millj. kr. rúmar. Það felst helst í niðurlagningu á skrifstofu ráðuneytisstjóra, stoðþjónustu að hluta og síðan eru tæplega átta stöðugildi auk rekstrarkostnaður og leiguhúsnæðis. Síðan verður hjá forsætisráðuneytinu hagræðing vegna fækkunar ráðherra og tveggja aðstoðarmanna sem er um 107 millj. kr., sem samanstendur aðallega af launum og rekstrarkostnaði. Þetta eru sem sagt laun ráðherra og aðstoðarmanna sem eru greidd út af fjárlagalið hjá forsætisráðuneytinu. Síðan er hjá Umbru – þjónustumiðstöð ráðuneytanna 15 millj. kr. hagræðing vegna akstursþjónustu. Ef við leggjum þetta allt saman þá er áætlað að hagræðingin innan Stjórnarráðsins vegna niðurlagningar menningar- og viðskiptaráðuneytisins verði um 362 millj. kr., en það er miðað hérna við 350 millj. kr. til þess að það sé ákveðið svigrúm vegna óvissu sem kemur upp þegar ráðuneytið verður gert upp.
Það hefur farið fram ítarleg vinna hvað þetta varðar. Þetta er bara mat á stöðugildum og núverandi kostnaði, þættir sem er verið að leggja fram.
Varðandi aukinn kostnað vegna ráðherra þá er ég ekki með þá tölu fyrir hv. þingmann en það eru þá væntanlega bara ráðherralaunin, það hefði þurft að borga fyrir aðstoðarmann og það hefði þurft að borga fyrir bílstjóra og allt svoleiðis. En ég segi þetta með öllum fyrirvörum.