156. löggjafarþing — 3. fundur,  11. feb. 2025.

landlæknir og lýðheilsa o.fl.

2. mál
[17:41]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu og lögum um sjúkraskrár. Frumvarpið er endurflutt frá síðasta löggjafarþingi. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á núgildandi ákvæði 8. gr. laga um landlækni og lýðheilsu um heilbrigðisskrár, en þegar þau lög voru samþykkt árið 2007 var landlækni gert skylt að halda heilbrigðisskrár með persónuauðkennum en dulkóðaðar. Í heilbrigðisskrár fara viðkvæmar persónuupplýsingar og því er nauðsynlegt að kveða ítarlega á um umgjörð heilbrigðisskráa í lögum.

Hvað varðar nauðsyn frumvarpsins hafa eftirlitsaðilar, Ríkisendurskoðun og Persónuvernd, bent á að gera þurfi breytingar á núgildandi 8. gr. sem er ekki nægilega skýr, sem hefur valdið vandkvæðum við túlkun og beitingu hennar. Í frumvarpinu er áhersla á að gæta að reglum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga sem og öryggi gagna.

Virðulegi forseti. Rík áhersla er lögð á gagnadrifna stefnumótun til að auka skilvirkni og framlegð í heilbrigðisþjónustu. Miðlæg skráning heilbrigðisupplýsinga er forsenda upplýstrar ákvarðanatöku, hagræðingar og framfara en það á ekki síst við um heilbrigðisskrár sem eru lykilgögn í heilbrigðisþjónustu. Markmiðið með rekstri slíkra skráa er að afla þekkingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu, auka gæði þjónustunnar og auka yfirsýn og meta árangur af veitingu hennar. Gögn úr heilbrigðisskrám má einnig nýta til stefnumótunar á sviði heilbrigðismála, við áætlunargerð, gæðaþróun, útdeilingu fjármagns og framkvæmd vísindarannsókna. Þá tryggir rekstur heilbrigðisskráa einnig að til staðar séu aðgengilegar og áreiðanlegar tölfræðiupplýsingar um lýðheilsu, m.a. svokallaða lýðheilsuvísa. Landlæknir vinnur einnig tölfræðiupplýsingar og greiningar úr gögnum skránna og veitir aðgang að þeim til þess bærum aðilum. Þarna getum við einnig séð hvernig mynstur sjúkdóma er og breytist. Loks má nefna að gögnin nýtast til alþjóðlegs samanburðar.

Hafa ber í huga að í heilbrigðisskrár fara engin frumskráð gögn, eingöngu er um afleidd gögn að ræða. Gögnin eru því ekki sérskráð af veitendum heilbrigðisþjónustu heldur liggja þegar fyrir, enda er kveðið á um skyldu til skráningar upplýsinga um sjúklinga og veitta meðferð í lögum um sjúkraskrár. Ákveðið undirmengi af þeim gögnum sem skráð eru með stöðluðum hætti af veitendum þjónustunnar er afhent til heilbrigðisskráa með einföldum hætti þar sem embættið hefur komið upp öruggri rafrænni leið til að senda heilbrigðisgögn milli aðila, þ.e. Heklu-heilbrigðisnetið. Með frumvarpinu er því ekki verið að gera auknar kröfur um skráningu í heilbrigðisþjónustu og ekki er verið að leggja nýjar og íþyngjandi kvaðir á veitendur heilbrigðisþjónustu.

Heilbrigðisskrár eru lykilgögn í heilbrigðisþjónustu og hefur landlækni verið skylt að halda slíkar skrár frá setningu fyrstu laga um landlækni árið 2007. Þannig er ekki um neinar nýjar skrár að ræða nú en skrár eru t.d. sameinaðar og bætt er við lyfjagagnagrunni sem þegar hefur stoð í lyfjalögum. Þarna er líka rennt stoðum undir skimunarskrá þar sem haldið verður utan um skimanir fyrir krabbameinum í brjósti og leghálsi og nú bráðlega krabbameinum í ristli og endaþarmi. Í frumvarpinu er lagt til að heilbrigðisskrár verði nýttar í fjölþættari tilgangi en áður til að tryggja að til staðar séu aðgengilegar og áreiðanlegar tölfræðiupplýsingar um lýðheilsu við mótun stefnu á sviði heilbrigðismála og þróun heilbrigðisþjónustu. Þar sem mikil tækniþróun hefur átt sér stað síðan lög um landlækni og lýðheilsu voru sett árið 2007 þarf löggjöfin að taka mið af því. Tækniþróunin hefur gert að verkum að unnt er að nýta heilbrigðisskrár enn frekar en áður en frumvarpið leggur til að stjórnsýslustofnanir eins og t.d. Sjúkratryggingar geti nýtt gögn úr heilbrigðisskrám við t.d. framkvæmd samninga um heilbrigðisþjónustu og útdeilingu fjármagns. Það mun nýtast til að auka gæði þjónustunnar og skilvirkni stofnunarinnar.

Í frumvarpinu er lagt til að heilbrigðisyfirvöldum og veitendum þjónustunnar verði heimilt að nýta skrárnar við skipulagningu heilbrigðisþjónustu og eftirlit með henni. Með nýrri tækni er hægt að veita takmarkaðan aðgang að heilbrigðisskrám, svo sem vegna miðlægra biðlista eftir þjónustu og fjármögnunarlíkana. Þannig má koma í veg fyrir uppbyggingu gagnagrunna með sömu upplýsingum hjá mismunandi aðilum, tryggja vernd viðkvæmra gagna og efla samstarf í heilbrigðisþjónustu.

Helsta nýnæmi frumvarpsins er tillaga um að heilbrigðisstofnunum og starfsstofum heilbrigðisstarfsmanna verði heimilt að stofna og reka gæðaskrár í heilbrigðisþjónustu. Gæðaskrár eru ítarlegri en heilbrigðisskrár og þar er um að ræða söfnun og skráningu klínískra gagna á samræmdan hátt til að fylgjast með greiningu og meðferð sjúkdóma, eins og t.d. krabbameini. Með gæðaskráningu fæst yfirlit yfir greiningar og meðferðarferli sjúklinga og fylgst er með sjúklingum að meðferð lokinni. Tilgangurinn er að bæta meðferð, leggja mat á árangur hennar og stuðla að framkvæmd vísindarannsókna. Með frumvarpinu er verið að bregðast við ábendingum frá veitendum heilbrigðisþjónustu um nauðsyn þess að tryggja lagastoð fyrir gæðaskrám og til að bæta meðferð sjúklinga og þjónustu við þá. Hér höfum við frábærar fyrirmyndir frá nágrannalöndunum, t.d. Svíþjóð.

Frú forseti. Í frumvarpinu er einnig lagt til að landlækni verði veitt heimild til að halda heilbrigðisskrár sem byggjast á gögnum úr reglubundnum heilsufarskönnunum. Hér má nefna sem dæmi könnunina Heilsa og líðan á Íslandi, sem framkvæmd er á fimm ára fresti. Sú könnun er skilgreind sem vísindarannsókn og því skylt að eyða gögnum að ákveðnum tíma liðnum. Í frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að reka heilbrigðisskrár þar sem vistuð verða gögn sem aflað er með könnunum og/eða vísindarannsóknum á grundvelli upplýsts samþykkis þátttakenda. Þannig verði unnt að varðveita þessi ítarlegu og mikilvægu gögn til framtíðar og fá enn betri yfirsýn yfir þær breytingar sem kunna að verða á heilsufari Íslendinga. Loks skal nefnt að á hverju ári tekur landlæknir til meðferðar um 100 mál sem krefjast aðgangs að sjúkraskrárgögnum. Um er að ræða mál sem varða mikilvæga og lögvarða hagsmuni sjúklinga. Í frumvarpinu er lagt til að heilbrigðisyfirvöldum verði heimill beinn aðgangur að rafrænum sjúkraskrám við meðferð kvörtunar- og kærumála og við rannsókn alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu í stað þess að þurfa að kalla eftir gögnum og bíða þeirra frá sjúkrastofnun. Hér er eingöngu verið að leggja til að landlæknir geti nýtt nútímatækni til að flýta málsmeðferð, auka öryggi og draga úr sóun. Þannig er ekki verið að leggja til að landlæknir fái aukið aðgengi að sjúkraskrám. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem eru til þess fallnar að efla stefnumótun á sviði heilbrigðismála, auka aðgengi að nauðsynlegum upplýsingum, bæta gæði þjónustunnar og um leið öryggi sjúklinga.

Hæstv. forseti. Ég hef nú farið yfir helstu efnisatriði þessa mikilvæga frumvarps en vísa að öðru leyti til greinargerðar þess og skýringa við einstakar greinar. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. velferðarnefndar og 2. umræðu.