landlæknir og lýðheilsa o.fl.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir spurningu og athugasemdir. Það er alveg rétt að þetta frumvarp var flutt á síðasta þingi, eins og tekið var fram í upphafi ræðu. Það er sérstaklega gaman að segja frá því að frumvarpið á uppruna sinn í fyrrum starfi undirritaðrar sem landlæknis. Þegar ég tók til starfa þar rak ég mig einmitt á óskilvirkni í öflun gagna og ágalla í lögum og reglum sem hefur hindrað að hægt væri að nýta gögnin með sem bestum hætti.
Ekki er í raun verið að auka aðgengi að gögnum, það er verið að skýra betur umgjörð og vissulega innihald en gert er ráð fyrir því að ráðherra setji reglugerð þar sem skýrt verði kveðið á um nákvæmlega hvaða gögnum verði safnað. Þetta mál á eiginlega uppruna sinn í því að til var reglugerð sem lagði meiri kvaðir á heilbrigðisstarfsmenn en lögin sögðu til um. Það eru nokkrar reglugerðir sem munu verða settar í framhaldi af því að þetta frumvarp verði samþykkt, sem það verður vonandi. Það er reglugerð varðandi vísindarannsóknir, það er reglugerð varðandi tilgang, skipulag og vinnslu og hvaða upplýsingar megi færa og hversu lengi megi varðveita þær; dulkóðun, aðgangsstýringar, aðgerðaskráning og margt fleira. Ég tel að það verði rækilega gengið frá því.