heilbrigðisþjónusta o.fl.
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um landlækni og lýðheilsu. Frumvarpið er endurflutt frá síðasta löggjafarþingi. Í frumvarpinu er lagt til að föstum lögbundnum hæfnisnefndum sem falið hefur verið að leggja mat á hæfni umsækjenda um stöðu stjórnenda og millistjórnenda á málefnasviði heilbrigðisþjónustu verði fækkað.
Í lögum um heilbrigðisþjónustu er kveðið á um skipan og hlutverk þriggja nefnda sem falið hefur verið að meta faglega hæfni umsækjenda um stöður stjórnenda og millistjórnenda. Annars vegar er um að ræða nefnd er varðar ráðningu forstjóra heilbrigðisstofnana og landlæknis. Hins vegar er um að ræða stöðunefnd lækna og stöðunefnd framkvæmdastjóra hjúkrunar, þ.e. nefndir sem falið hefur verið að leggja mat á faglega hæfni millistjórnenda á heilbrigðisstofnunum.
Virðulegi forseti. Almennt er það ekki svo að fastar lögbundnar hæfnisnefndir meti hæfni umsækjenda um stöðu millistjórnenda en samkvæmt gildandi lögum um heilbrigðisþjónustu má einungis ráða umsækjanda um annars vegar stöðu framkvæmdastjóra lækninga og hins vegar framkvæmdastjóra hjúkrunar sem hæfnisnefnd hefur metið hæfan. Þannig takmarka gildandi lög um heilbrigðisþjónustu mat á hæfni umsækjenda um stöðurnar við faglega hæfni. Brýnt er að tryggja að í stöður stjórnenda og millistjórnenda ráðist hæfustu umsækjendur hverju sinni. Ferli ráðninga þarf því að fela í sér mat á allri þeirri hæfni sem nauðsynleg er til starfans hverju sinni, þ.e. faglegri hæfni sem og öðrum þáttum sem til greina geta komið við val á mati á umsækjendum hverju sinni, svo sem stjórnunarreynslu sem og samskiptahæfni sem er einn mikilvægasti eiginleiki stjórnenda. Þegar kemur að ráðningum stjórnenda í heilbrigðiskerfinu er enn fremur mikilvægt að viðkomandi hafi hæfni og vilja til breytinga og umbótastarfs sem verður æ mikilvægara til að mæta þeim áskorunum sem við blasa í heilbrigðisþjónustu.
Samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins ræður forstöðumaður í störf hjá stofnun sem hann stýrir og er því bæði rétt og eðlilegt að forstöðumaður hafi svigrúm um val á aðferðum við ráðningu millistjórnenda. Þannig verður jafnframt gætt samræmis við framkvæmd annarra ríkisstofnana en eftir sem áður getur forstjóri skipað slíka hæfnisnefnd sérstaklega ef hann telur tilefni til.
Í frumvarpinu er einnig lagt til að horfið verði frá því fyrirkomulagi að föst lögbundin hæfnisnefnd meti hæfni umsækjenda um stöðu forstöðumanna heilbrigðisstofnana og embætti landlæknis. Í þeim nefndum sitja nefndarmenn sem skipaðir eru til fjögurra ára í senn en það fyrirkomulag hefur þótt skjóta skökku við. Í okkar fámenna samfélagi kemur iðulega fyrir að nefndarmaður þurfi að víkja sæti vegna vanhæfis.
Í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins er kveðið á um að ráðherra eða stjórn geti falið sérstakri hæfnisnefnd þriggja manna að meta hæfi umsækjenda um starf forstöðumanns. Um er að ræða ákvæði sem kom inn í lögin árið 2016 en með þeirri lagabreytingu hefur því verið komið á fót almennu fyrirkomulagi hæfnisnefnda við skipun í embætti forstöðumanna ríkisstofnana og því er ekki lengur þörf fyrir sérstakt ákvæði þess efnis í lögum um heilbrigðisþjónustu. Því yrðu að sjálfsögðu áfram skipaðar hæfnisnefndir þegar kemur að ráðningu forstjóra sem og landlæknis.
Frumvarpið er í samræmi við gildandi fyrirætlanir um að draga úr yfirbyggingu og ná fram hagræðingu og stuðla að betri nýtingu fjármuna. Liður í því er að fækka stjórnsýslunefndum til að ná fram skilvirkni í opinberum rekstri. Verði frumvarpið samþykkt má því gera ráð fyrir jákvæðum fjárhagslegum áhrifum á ríkissjóð.
Frú forseti. Ég hef nú farið yfir helstu efnisatriði frumvarpsins en vísa að öðru leyti til greinargerðar með því og skýringa við einstakar greinar. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. velferðarnefndar og 2. umræðu.