lyfjalög og lækningatæki.
Ég þakka hv. 1. þm. Norðvest. fyrir athugasemdirnar og geri mér grein fyrir að þar er hann á heimavelli. Það er alveg rétt að málið er endurflutt í fjórða sinn þar sem á fyrri stigum var um að ræða svokallaða gullhúðun. Hvort þetta frumvarp tekur til dýralyfja hef ég ekki skilið en ég skal kanna það til hlítar. Það er alveg rétt sem þingmaðurinn nefnir að þarna geta verið mjög margir aðilar undir en það fer algerlega eftir þeirri vá sem um er að ræða hverju sinni. Þingmaðurinn nefndi helstu aðila en svo geta í undantekningartilvikum verið einhverjir sem ekki hafa verið nefndir til sögunnar en það þarf auðvitað að skoða hverju sinni.