lyfjalög og lækningatæki.
Frú forseti. Ég vil gjarnan bæta við tveimur spurningum. Ef um er að ræða að dýralæknar eigi að gefa svar við þessu, hvernig sæi ráðherrann fyrir sér að hægt væri að nálgast þá aðila? Síðan langar mig að benda á eitt: Það er auðvitað ekki galin hugmynd að fylgjast með lyfjabirgðum landsins í rauntíma eins og Lyfjastofnun lagði upp með, en það er einfaldlega allt of dýrt og allt of íþyngjandi og myndi auðvitað bara einskorðast við apótek. Þá er spurningin hvort tækifæri sé til þess núna út frá þjóðaröryggi að skilgreina fyrir Ísland lykillyf sem við viljum eiga til og þá séð til þess að þær birgðir séu til á hverjum tíma.