siglingavernd.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar sitt. Með þessu frumvarpi sem hér er til umræðu erum við að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA, eftirlitsstofnunar EES-samningsins, um ófullnægjandi innleiðingu Evrópureglna. Þessar athugasemdir komu fram í úttekt stofnunarinnar á lögum um hafnaraðstöðu hér á landi. Við erum að bregðast við þessu, þetta var ekki rétt innleiðing og af því að við erum aðilar að EES-samningnum þá verðum við að innleiða rétt Evrópureglurnar sem eru í samningnum, sem sameiginlega nefndin úti í Brussel setur í samninginn. Við eigum ekki að gera það rangt og við erum að leiðrétta þetta hérna, gera þetta með réttum hætti til þess að koma í veg fyrir dómsmál. Verði frumvarpið samþykkt þá má gera ráð fyrir að máli eftirlitsstofnunarinnar vegna ófullnægjandi innleiðingar Evrópureglna verði lokað. Það þarf sem sagt ekki að fara í dómsmál. Það er nákvæmlega svona sem við eigum að vinna eftir samningnum. Þegar koma athugasemdir þá leiðréttum við það, þá lögum við það. Það getur verið þýðingarvilla, það getur verið villa, það vantar eitthvert atriði þarna inn eins og hérna greinilega. Það er þannig sem við eigum að vinna.
Varðandi bókun 35 þá er alveg kristaltært í mínum huga að það var gengið frá þessu fyrir 30 árum síðan. Menn vissu hvert vandamálið var. Af hverju? Jú, af því að á fótboltavellinum, innri markaði Evrópusambandsins, er bara eitt sett af reglum. Ísland getur ekki verið með sérreglur. Það vissu allir af þessu vandamáli um það hvort ætti að innleiða bókun 35 eða ekki. Það var ákveðið að gera það ekki og ég hef verið talsmaður þess að halda áfram á sömu vegferð og get m.a. vitnað til Carls Baudenbachers, dómara við EFTA-dómstólinn, sem segir að við höfum staðið okkur betur við innleiðingu EES-reglna heldur en Norðmenn sem hafa þessa forgangsreglu í lögum. Ég endurtek það að það hafa margir litið svo á að þessi forgangsregla væri inni í samræmisreglu 3. gr., ég veit að þetta er tæknilegt, en það var litið á það þannig. Hæstiréttur hefur vikið frá þessari skoðun. Þegar við göngum í samstarf við aðra flokka þá gefum við eftir sum mál okkar og fáum önnur fram. Þetta er málamiðlun. Íslensk stjórnmál byggjast á málamiðlunum. Við erum í flokkum, það er flokksagi og við spilum í sama liðinu. Ég fer ekki að breyta um leikkerfi í ríkisstjórn Íslands í dag, það var samið um þetta og ég styð ríkisstjórn Íslands og það er þannig sem ég lít á þetta mál. En sannfæring mín er sú að ég hefði viljað að málið færi fyrir EFTA-dómstólinn. Það var mín sannfæring og mín skoðun. (Forseti hringir.) Núna mun það sennilega fara fyrir Hæstarétt Íslands og það er Hæstiréttur Íslands sem ákveður fullveldi á hverjum tíma í þeim dómsmálum sem hann tekur fyrir.